fasteignasölur.is
Breiðamörk 33
Opið hús 26. sept. kl. 14:45–15:15
1 af 42

Um eignina

VALBORG fasteignasala kynnir í einkasölu Beiðumörk 33, 810 Hveragerði.
Eignin stendur ein og sér upp á hæð á leið inn í Reykjardal og er því stutt í fallegt útivistarsvæði og náttúru.
Einnig er stutt í skóla og þjónustu.
Eignin er samtals 149,4m² að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Eignin telur forstofu, stofu, eldhús, sólstofu, fimm svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Sjá staðsetningu hér:


Nánari lýsing:
Forstofa er viðbygging sem kom árið 2002. Hún er flísalögð og þar er fataskápur.
Eldhús með grárri innréttingu, góðu skápa og skúffuplássi, uppþvottavél, eldavél, bakarofn og háfur. Frá eldhúsi er innangengt í geymslu og þvottahús.
Stofan er parketlögð og þar er gluggi til suðurs. Frá stofu er gengið inn í sólstofu sem var byggð við árið 2002.
Sólstofan er björt og falleg með miklu útsýni til suðurs og austurs. Frá sólstofu er útgengt á aflokaða timburverönd er snýr í suður en þar er einstaklega skjólsælt.
Svefnherbergin eru fimm.
Hjónaherbergi er rúmgott og þar fataskápur. Útgengt er frá svefnherbergi út á sólpall. Parket á gólfi.
Barnaherbergin eru fjögur. Öll með parketi á gólfi. 
Baðherbergi með upphengdu wc, sturtu, handklæðaofni og innrétting með handlaug og góðu skúffuplássi. Sturta er flísalögð, vínill á gólfi og veggjum annarstaðar.
Þvottahús með hurð út á baklóð. Þar inni er pláss fyrir þvottavél og þurkara í vinnuhæð, skolvaskur og innrétting.

Garður er gróin og snyrtilegur. Fallegur gróður allt um kring.

Framkvæmdir:
Viðbygging sólstofa og forstofa 2002/2003 og hús klætt að utan.
Baðherbergi og eldhús í kringum 2018.
Skolp endurnýjað, plast alla leið og nýlega myndað.
Ofnakerfi endurnýjað og utanáliggjandi.

Nánari upplýsingar veita:
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Breiðamörk 33

810 Hveragerði
TegundEinbýlishúsStærð149,4 m²Herbergi7Svefnherb.5Baðherb.1
82.900.000 kr.555 þ./m²
Byggingarár1950InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2211016Fasteignamat81.600.000 kr.Brunabótamat80.100.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangNóatúni 17, 105 ReykjavíkSími419-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑