fasteignasölur.is
Vesturgata 35a
1 af 42

Um eignina

Vesturgata 35A, 101 Reykjavík

STOFN Fasteignasala kynnir Vesturgötu 35A, 99,4 m² parhús á eignalóð í gamla Vesturbænum. Hér fara saman eftirsótt staðsetning, núverandi leigutekjur, sveigjanleg nýting og áhugaverðir möguleikar til framtíðar.

Húsið er byggt árið 1898 og hefur þann karakter sem einkennir eldri byggð í þessum hluta Reykjavíkur. Eignin er í dag nýtt í tveimur einingum með sérinngangi og eru samkvæmt upplýsingum seljanda báðar einingar í útleigu með samtals um 525.000 kr. leigutekjur á mánuði.
Efri hæð er samþykkt íbúð með tveimur svefnherbergjum, stofu/borðstofu, eldhúsi og baðherbergi. Neðri hæð/kjallari hefur verið nýtt sem sér eining með sérinngangi, stofu og eldhúsaðstöðu, herbergi og baðherbergi. Athygli er vakin á að neðri hæðin er ósamþykkt sem íbúð og er ekki með fullri lofthæð.

Samkvæmt upplýsingum seljanda liggja jafnframt fyrir samþykktar teikningar vegna rishæðar/þriðju hæðar þar sem gert er ráð fyrir kvisti, svölum og stiga frá efri hæð. Þar skapast áhugaverð framtíðarsýn fyrir eignina og möguleikar á bættu notagildi.

Ásett verð: 79.900.000 kr.
Viltu skoða?
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala Sími: 661 7788 
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


Helstu kostir:
• Leigutekjur um 525.000 kr. á mánuði samkvæmt upplýsingum seljanda
• Parhús á eignalóð í 101 Reykjavík
• Núverandi nýting í tveimur einingum með sérinngangi
• Efri hæð er samþykkt íbúð
• Samkvæmt upplýsingum seljanda liggja fyrir samþykktar teikningar vegna rishæðar/þriðju hæðar með kvisti, stiga og svölum
• Endurbætur hafa farið fram á m.a. efri hæð, framhlið, rafmagni og lögnum samkvæmt upplýsingum seljanda
• Byggt árið 1898 – hús með sögu og karakter
• Stutt í Granda, höfnina, miðbæinn og fjölbreytta þjónustu

*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina*

"Smelltu hér til að sækja söluyfirlit"


Leigutekjur og nýting
Einn helsti styrkur eignarinnar er núverandi nýting. 

Samkvæmt upplýsingum seljanda eru báðar einingar eignarinnar nú í útleigu og nema heildarleigutekjur um 525.000 kr. á mánuði, eða um 6,3 milljónum króna á ári miðað við núverandi leigutekjur.

Eignin er skráð 99,4 m² á tveimur hæðum. Efri hæðin er samþykkt íbúð en neðri hæð/kjallari, sem er hluti af skráðri stærð eignarinnar, hefur verið nýtt sem sér eining með sérinngangi. Neðri hæðin er ekki samþykkt sem sjálfstæð íbúð og er ekki með fullri lofthæð.

Fyrir kaupanda sem horfir til tekna, sveigjanlegrar nýtingar og möguleika til framtíðar er því um áhugaverða eign að ræða á eftirsóttum stað í 101 Reykjavík.

Eignin skiptist í: 

Efri hæð:

Anddyri/forstofu, stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi.

Neðri hæð/kjallari:
Sérinngang, anddyri, opið alrými með stofu og eldhúsaðstöðu, baðherbergi og eitt herbergi.

Nánari lýsing – efri hæð

Forstofa / anddyri:
Gengið er inn í forstofu með skápaplássi, glugga og þvottaaðstöðu.
Eldhús:
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, góðu vinnuplássi og tengingu við stofu og borðrými. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur verið sett upp nýleg eldhúsinnrétting ásamt nýjum vaski, blöndunartækjum og uppþvottavél.
Stofa / borðstofa:
Bjart og notalegt rými sem nýtist vel fyrir bæði setu- og borðaðstöðu.
Hjónaherbergi:
Gott herbergi með skápaplássi.
Svefnherbergi:
Inn af stofu er annað svefnherbergi sem getur einnig nýst sem barna-, gesta- eða vinnuherbergi.
Baðherbergi:
Baðherbergi með glugga, sturtu og ljósri innréttingu. Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur baðherbergið verið endurnýjað, meðal annars með sturtu, handlaug, blöndunartækjum, innréttingu og flísum.

Neðri hæð / kjallari
Neðri hæðin hefur verið nýtt sem sér eining og er með sérinngangi.
Inngangur:
Gengið er niður flísalagðan stiga að inngangi hæðarinnar. Komið er inn í anddyri með fatahengi og flísum á gólfi.
Eldhús:
Opið rými með ljósri eldhúsinnréttingu aðstaða fyrir eldhúsborð, lítill gluggi.
Stofa:
Inn af eldhúsi setustofa með glugga.
Baðherbergi:
Er flísalagt og þar er baðkar/sturtuaðstaða, innrétting, salerni og tengi fyrir þvottavél.
Neðri hæð/kjallari er ósamþykkt sem íbúð og ekki með fullri lofthæð.

Framkvæmdir og endurbætur
Samkvæmt upplýsingum seljanda hefur ýmislegt verið endurbætt á undanförnum árum.

Frárennsli / skólp í götunni var endurnýjað á árunum 2020–2021.
Framhlið hússins, Vesturgötumegin, hefur verið klædd að nýju og framkvæmdir hafa verið unnar við þakrennur.
Á efri hæð hefur baðherbergi verið endurnýjað og nýleg eldhúsinnrétting sett upp.
Samkvæmt upplýsingum seljanda voru rými eignarinnar máluð árið 2025 og gluggar málaðir innan sem utan, að einum undanskildum.
Rafmagn hefur einnig verið endurnýjað að stórum hluta og samkvæmt upplýsingum seljanda er það endurnýjað að fullu á efri hæð.

Möguleikar til framtíðar
Samkvæmt upplýsingum seljanda liggja fyrir samþykktar teikningar vegna hækkunar hússins með rishæð/þriðju hæð.
Á teikningum er gert ráð fyrir kvisti, svölum og stiga sem tengir efri hæð við rishæðina. Þar er gert ráð fyrir rými sem getur aukið notagildi eignarinnar og gefið húsinu nýja vídd til framtíðar.
Teikningarnar eru sérstaklega áhugaverðar fyrir kaupanda sem sér verðmæti í því að geta þróað eignina áfram og nýtt þá möguleika sem fyrir liggja.
Kaupanda er bent á að kynna sér teikningar, samþykktir og önnur gögn vegna fyrirhugaðra breytinga sérstaklega.

Staðsetning
Vesturgata 35A er vel staðsett í gamla Vesturbænum, í nálægð við bæði miðborgina og Granda.
Stutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, skóla, leikskóla, þjónustu, menningu og útivist auk þess sem höfnin, Grandi og miðborg Reykjavíkur eru í þægilegri nálægð.
Þetta er staðsetning fyrir þá sem vilja njóta borgarlífsins en um leið þess karakter sem eldri byggð Vesturbæjarins hefur að geyma.
Samantekt

Vesturgata 35A sameinar nokkur atriði sem sjaldan fara öll saman í einni eign: miðborgarstaðsetningu, eignalóð, núverandi leigutekjur og möguleika til frekari þróunar.
Eignin getur því höfðað jafnt til kaupanda sem sér fyrir sér eigið heimili með sveigjanlegri nýtingu og til þess sem horfir sérstaklega til leigutekna og framtíðarmöguleika.

Viltu skoða?
Nánari upplýsingar og bókun skoðunar:
Benedikt Ólafsson, löggiltur fasteignasali og félagi í Félagi fasteignasala Sími: 661 7788 
Netfang: bo@stofnfasteignasala.is


Fyrirvari
Allar upplýsingar um framkvæmdir, endurbætur, leigutekjur og samþykktar teikningar eru samkvæmt upplýsingum seljanda nema annað sé sérstaklega tekið fram. Kaupanda er bent á að kynna sér eignina og öll gögn sem henni tengjast, þar á meðal skráningu eignarhluta, samþykktir, teikningar, leigusamninga og önnur gögn sem kunna að skipta máli við kaup.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · STOFN - Fasteignasala ehf.
79.900.000 kr.804 þ./m²
+36,3% á 5 árum
15. október 2021Þinglýstur kaupsamningur
58.600.000 kr.590 þ./m²
+126,3% á 14 árum
13. júlí 2007Fyrsta sala
25.900.000 kr.261 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Vesturgata 35a

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundRað-/parhúsStærð99,4 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
79.900.000 kr.804 þ./m²
Byggingarár1898FasteignanúmerF2001405Fasteignamat94.100.000 kr.Brunabótamat48.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangLyngás 11, 210 GarðabærSími511-0900 / 661-7788

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑