Opið hús 27. sept. kl. 16:00–16:30
1 af 31Um eignina
Nýtt á skrá! Álftamýri 40 Reykjavík - Vel skipulögð, mikið endurnýjuð og frábærlega staðsett 3ja herb. íbúð!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 4. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Álftamýri 40 í Reykjavík. Íbúðin er alls 74,0 fermetrar að stærð og þar af er geymsla 5,8 fermetrar. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Útgengi á svalir til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum, m.a. baðherbergi (2024), innihurðar (2026), eldhús (2013), gólfefni/parket (2021), ný eldavél og ofn (2024) og rafmagnstafla íbúðar yfirfarin og tenglar jarðtengdir (2016 - tekið út af HMS).
Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. M.a. var þakið endurnýjað á árunum 2006-2007. Árið 2014 voru skólplagnir og brunnar endurnýjaðar innan lóðar og drenlagnir lagðar. Sama ár voru stéttar endurnýjaðar með snjóbræðslu og innkeyrsla og bílaplön malbikuð. Á árunum 2017-2018 var unnið við múrviðgerðir og málun á húsinu ásamt því að skipta var um alla glugga í blokkinni og svalahurðir. Þá er auk þess búið að endurnýja dyrasímakerfi hússins, brunavarnahurðir, mála og skipta um teppi á stigagangi.
Snyrtilegt rúmgott sameiginlegt þvottaherbergi á jarðhæð hússins og hjóla- og vagnageymslu. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuð sameiginleg bílastæði.
Um er að ræða frábæra staðsetningu við Álftamýri 40 miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og íþróttasvæði í göngufjarlægð. Stutt í allar helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing:
Forstofa/hol: Með harðparketi á gólfi og fatahengi.
Stofa: Með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri hvítri eldhúsinnréttingu. Nýleg eldavél, flísar á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur og gluggi til norðurs.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum, flísalögð sturta, upphengt salerni og innrétting við vask. Handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél/þurrkara og gluggi til norðurs.
Geymsla: Er 5,8 fermetrar og er staðsett á jarðhæð hússins.
Þvottaherbergi: Er sameiginlegt á jarðhæð hússins. Sér tenglar fyrir hverja íbúð fyrir þvottavél og þurrkara. Málað gólf, vinnuborð og gluggi til vesturs.
Hjóla- og vagnageymsla: Með máluðu gólfi.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Álftamýri 40
108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð74 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
65.900.000 kr.891 þ./m²
Byggingarár1963InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2014230Fasteignamat58.600.000 kr.Brunabótamat40.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 31 myndir
Upp ↑