fasteignasölur.is
Maríubaugur 69
1 af 33

Um eignina

Díana og Hulda, löggiltir fasteignasalar hjá Lögheimili Eignamiðlun ehf. kynna eignina Maríubaugur 69, 113 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 225-8332 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Maríubaugur 69 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 225-8332, birt stærð 190.1 fm.


Fallegt og vel skipulagt rað-keðjuhús á einni hæð ásamt innangengum bílskúr við Maríubaug í  Reykjavík.  Eignin er skráð 190,1 fm. þar af bílskúr 32,2 fm. sem telur rúmgott anddyri, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús með gaseldavél, rúmgóðri stofu, skjólgóður pallur með heitum potti, grill/barhúsi, hobbýskúr auk bílskúr með rúmgóðu bílastæði fyrir framan hús. 

Nánari lýsing: 
Anddyri: flísar á gólfi, innangengt í þvottahús og þaðan í bílskúr.
Þvottahús: flísar á gólfi, gluggi með opnanlegu fagi og innangengt í bílskúr.
Sjónvarpsherbergi: rúmgott og bjart með glugga, flísar á gólfi, aukin lofthæð.
Eldhús: opið inn í stofu, falleg innrétting með góðu skápaplássi, gaseldavél með 6 brennurum og ofni undir. Góð vinnuaðstaða, aukin lofthæð, flísar á gólfi og stór gluggi. 
Stofa / borðstofa: rúmgóð og björt með aukinni lofthæð, flísar á gólfi og gluggar á þrjá vegu. Frá borðstofu er útgengt á skjólgóðan pall sem er fyrir framan hús.
Hjónaherbergi: rúmgott með stórum fataskápum, aukin lofthæð og ófrágengnu gólfi.
Barnaherbergi: eru tvö, bæði með ófrágengnu gólfi, fataskápur er í öðru herberginu.
Baðherbergi: flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting með handlaug, stórt hornbaðkar með sturtu, vegghengt wc og stór áfastur spegill. 
Bílskúr: flísalagður með innkeyrsluhurð, yfir hluta bílskúrs er geymsluloft. Gluggi með opnanlegu fagi og útgengi á bílastæði. Góður vinnukrókur með glugga og opnanlegu fagi,útgengi á bílastæði.   
Bílaplan: afar rúmgott, hellulagt og með hitalögn.   
Garður / lóð: Fallegur pallur er fyrir framan hús sem er lokaður milli húsa þar er útsýni til vesturs. Flott opið grillhús með pizzaofni, bar og borðaðstöðu. Hobbýskúr sem lokar pallinn af. Heitapottur sem ekki er vitað ásand á. Möguleiki að fara á pallinn við innganginn. Falleg náttúra er í kringum húsið, útsýni.
Samkvæmt seljanda: mæla með að skoða vel þar sem þau vita lítið um eignina þetta er dánarbú. Gluggar og hurðar þurfa viðhald komið á tíma, ryð komið á þak við þakrennur. Gler sem lokar pallinn af er brotið. Eignin er á byggingarstigi 2 en eigandi er að vinna í að fara í byggingarstig 4. Gott er að fá fagaðila til að skoða með sér, rafmagn, pípulagnir, glugga, þak og fleirra.
 Vakin er athygli á að um að seljandi er dánarbú og því lítið vitað um ástand eignarinnar og upplýsingar um ástand sem þó koma fram eru að svo miklu leyti sem hægt er á ábyrgð forsvarsmanns dánarbúsins.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð s.895 9989 Löggiltur fasteignasali  diana@logheimili.is.
Hulda Ósk s.771 2528 Löggiltur fasteignasali  hulda@logheimili.is.

 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lögheimili Eignamiðlun ehf.
138.900.000 kr.731 þ./m²
+247,3% á 15 árum
29. desember 2011Fyrsta sala
40.000.000 kr.210 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Maríubaugur 69

113 Reykjavík · Grafarholt
TegundRað-/parhúsStærð190,1 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
138.900.000 kr.731 þ./m²
Byggingarár2002InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2258332Fasteignamat135.700.000 kr.Brunabótamat107.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 2, Kópavogi, 201Sími530-9000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑