fasteignasölur.is
Skarðshlíð 24 íbúð 401
1 af 21

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Skarðshlíð 24 íbúð 401 - Mjög mikið endurnýjuð 4ra herbergja íbúð á 4.hæð/efstu í fjölbýli í Glerárhverfi - stærð 82,2 m²

* Vínyl parket er á allri íbúðinni. 
* Sérsmíðað eldhús og fataskápar
* Eikar innihurðar
* Búið er að endurnýja ofna og rafmagnstengla.


Eignin skiptist í forstofu/gang, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu. Sér geymsla er í kjallaranum og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Forstofa og gangur eru með vínyl parketi á gólfi, opnu hengi og fataskápum. 
Eldhús, vönduð plastlögð innrétting með þiljum á milli skápa. Stæði er í innréttingu fyrir ísskáp og uppþvottavél. AEG ofn og helluborð. 
Stofan er rúmgóð, með vínyl parketi á gólfi, stórum suður glugga og hurð út á steyptar suður svalir. 
Svefnherbergin eru þrjú, öll með vínyl parketi á gólfi og vönduðum fataskápum. 
Baðherbergi er með vínyl parketi á gólfi og þiljum á veggjum. Hvít innrétting, upphengt wc, sturtuklefi og handklæðaofn. Hvít innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara. 

Sér geymsla er í kjallaranum með lökkuðu gólfi og hillum. 
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í kjallaranum. 

Húsfélagið er að fara í endurnýjun á lögnum undir húsinu og er áætlaður framkvæmdartími okt - nóv 2026.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Skarðshlíð 24 íbúð 401

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundFjölbýlishúsStærð82,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
49.900.000 kr.607 þ./m²
Byggingarár1972InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2150324Fasteignamat41.400.000 kr.Brunabótamat46.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑