fasteignasölur.is
Álfheimar 25
Opið hús 28. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 24

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir:  LAUS VIÐ KAUPSAMNING – Mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð sem skiptist í forstofu, rúmgott hol, stofu, eldhús og svefnherbergisálmu þar sem eru 2 svefnherbergi, baðherbergi, geymsla og þvottahús. Nýleg gler í gluggum. Afar vinsæl staðsetning þaðan sem stutt í alla þjónustu, s.s. skóla og leikskóla, Glæsibæ, Skeifuna og Laugardalinn.   Allar nánari upplýsingar veitir Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
Nánari lýsing:   Íbúðin er í kjallara í vel staðsettu fjórbýli byggðu 1961. Í íbúðinni er nýlegt gler í öllum gluggum nema í þvottahúsi og hitaklefa. Í sumar voru neysluvatnslagnir og ofnalagnir í kjallara endurnýjaðar. Verið er að vinna að nýjum eignaskiptasamningi þar sem fram kemur að þvottahús og hitaklefi eru séreign þessarar íbúðar og við það mun skráning íbúðarinnar verða 100,4 fm.
Forstofa: Með flísum á gólfi
Hol: Rúmgott með fatahengi og viðarparketi á gólfi.
Stofa: Með góðum glugga í vestur og minni glugga á suðurhlið. Parket á gólfi. 
Eldhús: Meðhvítri innréttingu og rými fyrir eldhúsborð. Flísar á gólfi.
Svefnherbergisálma: Svefnherbergisgangur með parketi sem tengir öll rýmin, eða 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Hjónaherbergi: Ágætlega rúmgott með innbyggðum upprunalegum skáp með rennihurðum. Parket á gólfi. 
Barnaherbergi: Með parketi á gólfi
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með sturtuklefa og innréttingu við vask. Gluggi.
Þvottahús: Óinnréttað og engin gólfefni. Innaf þvottahúsinu er fyrrum hitaklefi, einnig óinnréttaður.
Geymsla: Með hillum sem fylgja. Steypt gólf. 
Viðhald húss: Á síðasta ári var skólp myndað og taldist í lagi nema á einum stað og var það viðgert. Á þessu ári voru vatns- og neyslulagnir endurnýjaðar í kjallara.
Mjög rúmgóð 3ja herbergja íbúð á afar vinsælum stað. Allar nánari upplýsingar gefur Jóhanna Kristín Tómasdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 837-8889 eða hjá johanna@fstorg.is
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari
ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Álfheimar 25

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð89,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
64.900.000 kr.725 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2021291Fasteignamat66.200.000 kr.Brunabótamat44.250.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑