fasteignasölur.is
Tangagata 14
1 af 40

Um eignina

Fasteignasala Vestfjarða s. 4563244 - eignir@fsv.is - www.fsv.is - kynnir til sölu -  Tangagata 14 Ísafirði - Einstaklega fallegt og vel staðsett timburhús á fjórum hæðum að kjallara og rishæð meðtöldum. Húsið hefur verið mikið endurnýjað frá 2014.

Aðalinngangur á 1. hæð, þar er opin forstofa og gangur, útgengt úr gangi út í bakgarð.
Stórt og fallegt eldhús með hvítri innréttingu og tækjum. Eldhús var uppgert um 2021.
Salerni á hæðinni einnig uppgert um 2021.
Rúmgóð og björt stofa og borðstofa, þaðan innangengt í sólstofu með útgangi út í fallegan garð. Nýlegt harðparket á gólfum. 

Tréstigi á milli hæða.
Á 2. hæð er uppgert fallegt baðherbergi með baðkari og sturtu, flísar á veggjum og góð innrétting. 
Herbergi/sjónvarpsstofa með parketi á gólfi, útgengt út á svalir þaðan.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi, búið er að útbúa stórt og flott fataherbergi innaf hjónarherbergi, það var áður sér svefnherbergi.

Á rishæð eru tvö ágæt herbergi undir súð, minna herbergi nýtist sem geymsla í dag.
Rishæðin er óskráð í heildarstærð eignar hjá fasteignaskrá en má gera ráð fyrir það þar séu um 20 m² með lofthæð yfir 180 cm. 

Kjallari, tréstigi niður í kjallara, þar er gangur með harðparketi, þrjú herbergi, geymsla  og þvottahús með sturtu.

Fallegur afgirtur garður er bæði sunnan við hús og fyrir aftan, hellulagður að hluta en að mestu með stórum sólpalli, góður geymsluskúr í garði.

Þakjárn endurnýjað 2025.



 

Nánari upplýsingar og skoðunartima veitir Guðmundur Óli Tryggvason Lögg. fasteignasali, í síma 4563244 og 8208284, tölvupóstur eignir@fsv.is

Smelltu hér til að panta frítt söluverðmat eða skrá eignina þína!
Smelltu hér til að fylgja okkur á Facebook
Smelltu hér til að fylgja okkur á Instagram

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga, 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnana: vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu samkvæmt gjaldskrá.

Tangagata 14

400 Ísafjörður
TegundEinbýlishúsStærð193,7 m²Herbergi8Svefnherb.5Baðherb.2
93.000.000 kr.480 þ./m²
Byggingarár1903InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2216216Fasteignamat58.850.000 kr.Brunabótamat97.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnarstræti 19, 400 ÍsafjörðurSími456-3244

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑