fasteignasölur.is
Starhólmi 6
1 af 30

Um eignina

Eignamiðlun kynnir:

Góð 3ja herbergja 100,5 fm íbúð með sérinngang og timburlögðum sérafnotareit til suðurs í tvíbýlishúsi við Starhólma 6 í Kópavogi rétt við Fossvogsdalinn. Íbúðin hefur verið töluvert endurnýjuð og fylgir sérbílastæði við húsið. Stutt er í alla helstu þjónustu. Hiti er í plani og gönguleið að íbúð. Gólfhiti er í íbúðinni. Húsið er nýlega málað og er þak nýlega endurnýjað. Efri hæð og bílskúr er einnig til sölu svo mögulegt væri að eignast allt húsið.

Íbúðin skiptist í forstofu með þvottaaðstöðu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og hol sem hefur verið nýtt sem borðstofa. Sér geymsla/lagnarými er fyrir framan íbúðina og er í séreign. 

Gengið er inn í íbúðina inn um sérinngang á austurhlið hússins. Komið er inn á parketlagðan gang/forstofu með fataskáp. Af gangi er þvottaaðstaða. Eldhúsið er með fallegum hvítum innréttingum og flísalagðri eyju. Eldhúsið er opið yfir í stofu. Rýmin eru bæði parketlögð. Opið er út á rúmgóða timburverönd til vesturs. Inn af stofu er hol/borðstofa við herbergisgang. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og með stóru flísalögðu sturturými og innréttingum. Walk in sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði parketlögð og er hjónaherbergið með fataskápum. Ath. að parket íbúðar er lélegt. Geymsla/lagnarými íbúðar er undir tröppum efri hæðar fyrir framan inngang íbúðar.
Um er að ræða mjög góða og vel staðsetta íbúð á höfuðborgarsvæðinu. Á næstu árum stendur til að endurnýja götuna ásamt lögnum að húsinu að sögn eiganda.

Nánari upplýsingar veitir Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090

 

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
79.000.000 kr.786 þ./m²
+27,4% á 5 árum
18. febrúar 2022Þinglýstur kaupsamningur
62.000.000 kr.617 þ./m²
+54,6% á 5 árum
29. júní 2017Þinglýstur kaupsamningur
40.100.000 kr.399 þ./m²
+48,2% á 4 árum
8. maí 2013Þinglýstur kaupsamningur
27.061.000 kr.269 þ./m²
+50,3% á 5 árum
3. janúar 2008Fyrsta sala
18.000.000 kr.179 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Starhólmi 6

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð100,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
79.000.000 kr.786 þ./m²
Byggingarár1978InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2306106Fasteignamat73.200.000 kr.Brunabótamat52.550.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegi 11, 108 ReykjavíkSími588-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑