fasteignasölur.is
Hulduhlíð 9
Opið hús 27. sept. kl. 15:00–15:30
1 af 24

Um eignina

Berg fasteignasala kynnir:

Hulduhlíð 9 í Mosfellsbæ.

Falleg og mikið endurnýjuð 65,8 fm. Íbúðin er  á 2. hæð með sér inngangi.   

Nánari lýsing:  Komið er í anddyri með flísum á gólfi.  Til hliðar úr gangi er baðherbergi með glugga og flísum á gólfi. Baðkar. Inn af baðherbergi er þvottahús með flísum á gólfi.  Svefnherbergið er rúmgott með stórum skápum  og nýlegu parketi á gólfi. Geymsla er í íbúðinni sem er nýtt sem vinnuherbergi. Geymsluloft er yfir allri íbúðinni.  Manngengt. Eldhúsið er með nýrri eldhúsinnréttingu og eldhústækjum. Ísskápur og uppþvottavél fylgja.  Mjög snyrtilegt og vandað eldhús.  Útgengt er úr eldhúsi á svalir sem snúa í suður. Björt stofa með glugga í suður. Nýlegt  parkett á öllum  gólfum í íbúðinni nema í anddyri og baðherbergi/þvottahúsi, þar eru flísar.   Íbúðin á hlut í sameiginlegri hjólageymslu á jarðhæð.  Góð aðkoma er að húsinu, næg bílastæði.  Garðurinn er verðlaunagarður, afar snyrtilegur með trjám, runnum og grasflötum.  Gróið og fallegt hverfi, stutt í grunnskóla og leikskóala,  íþróttahús og góða sundlaug   í göngufjarlægð.   Golfvöllur í næsta nágrenni. 

Allar nánari uppl hjá Pétri s. 897-0047  eða petur@berg.is 

Hulduhlíð 9

270 Mosfellsbær
TegundFjölbýlishúsStærð65,8 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.800.000 kr.985 þ./m²
Byggingarár1999InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2239989Fasteignamat58.150.000 kr.Brunabótamat35.700.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHáholt 14, 270 MosfellsbærSími588-5530

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑