fasteignasölur.is
Blönduhlíð 16
1 af 19

Um eignina

Blönduhlíð 16 Reykjavík.
Glæsileg 2ja - 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með verönd. 

Íbúð skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu. Suður verönd út frá borðstofustofu.
Eignin er skráð í þjóðskrá 102,8 fm.

Frekari upplýsingar eru hjá Eddu í síma 845-0425 (edda@fjarfesting.is)

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fatahengi, dúkur á gólfi. 
Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum.  Parket á gólfi. 
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Útgengt er á verönd.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Herbergi hefur verið breytt í borðstofu en auðvelt er að breyta til baka.
Baðherbergi flísalagt, upphengt salerni, rúmgóð sturta. Hiti í gólfi.
Sameiginlegt þvottahús.
Sérgeymsla á geymslugangi.

Eldhús endurbætt árið 2017 m.a. ný borðplata og rafmagn endurnýjað.
Baðherbergið endurnýjað árið 2021
Rafmagn í íbúðinni er að mestu leyti endurnýjað.
Eignin hefur fengið gott viðhald, hús steinað og skipt um glugga þar sem þörf var og aðrir lagaðir árið 2023.  Það liggur fyrir viðgerð á þaki sem húsfélagið er að safna fyrir.

Fjárfesting fasteignasala og Edda Svavarsdóttir, löggiltur fasteignasali, eru með þessa eign í einkasölu. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.
 

Blönduhlíð 16

105 Reykjavík · Austurbær
TegundHæðStærð102,8 m²Herbergi3Svefnherb.1Baðherb.1
82.500.000 kr.803 þ./m²
Byggingarár1951InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2031238Fasteignamat78.850.000 kr.Brunabótamat47.850.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBorgartúni 31, 105 ReykjavíkSími562-4250

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑