fasteignasölur.is
Mýrarvegur 12
1 af 28

Um eignina

Eignamiðlun Suðurnesja kynnir Mýrarveg 12, 311 Borgarbyggð.

Um er að ræða Sumarbústað á 8.500 fm eignarlóð í landi Galtarholts í Borgarbyggð. Er inn á skipulögðu sumarhúsasvæði sem heitir Stekkjarás.
Stærð: 62,7m2 + 4m2 geymsluskúr (óskrá hjá HMS), samtals 66,7m2
Byggingarár skráð 2009, stækkun og miklar endurbætur árin 2020-2022. Allt húsið einangrað upp á nýtt og klætt með aluzink klæðningu. Þakið klætt með lituði bárustáli.
Nánari lýsing:
Komið er inn í gang/anddyri, stórt svefnherbergi á vinstri hönd, á hærgi hönd er minna svefnherbergi, fatahengi og baðherbergi með WC, baðinnréttingu, sturtu og 300 lítra hitakút. Stórt geymsluloft er yfir þessum rýmum. Síðan er komið inn í stórt alrými, stofu og eldhús. Varmadæla hitar upp bústaðinn en einnig er kamína í stofunni og rafmagnsofnar í svefnherbergjum og baði.
Umhverfis bústaðinn er fallegur birkiskógur og bláberjamór.
Bústaðurinn er á 8.500m2 eignarlóð með mjög góðu útsýni. Eigendur hafa gróðursett mikið á síðustu 20 árum. Á lóðinni er matjurtabeð og einnig flaggstöng ásamt stóru og góðu bílastæði. Ca. 50m2 sólpallur
Sameign sumarbústaðasvæðisins, s.s. girðingar, vegir (3km), lagnir og land (tæpir 20 hektarar) fylgir með í hlutfallinu 1/41 sem þýðir að allar lóðir fá jafna skiptingu landsins.
Lokað/læst hlið er inn á svæðið.
10-15 mín. akstur frá Borgarnesi (15km) og ca. 1 klst frá Reykjavík (90km).
Stutt í sundlaug á Varmalandi, 5 mín akstur í bensínstöð og sjoppu (Baula), stutt í golf á Hamri og Glanna. Stutt í allar helstu nátturuperlur Borgafjarðar. Danílslundur í göngufæri
Gönguleiðir, styttri og lengri eru frá bústaðnum. Fagurt útsýni á fjallgarða og jökla Borgarfjarða, s.s. Skessuhorn, Hafnarfjall, Eiríksjökul, Langjökul ofl.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu okkar að Hafnargötu 50, Reykjanesbæ, og í síma 420-4050 eða á netfangið: es@es.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1.    Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga (0,4%
ef um er að ræða fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr.
3.800 af hverju skjali.
3.    Lántökugjald lánastofnunar – mismunandi á milli lánastofnana. Nánari upplýsingar
á heimasíðum lánastofnana.
4.    Umsýslugjald til fasteignasölu, skv. gjaldskrá.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignamiðlun Suðurnesja bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
 
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
 

Mýrarvegur 12

311 Borgarnes (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð62,7 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
39.900.000 kr.636 þ./m²
Byggingarár2009FasteignanúmerF2317335Fasteignamat36.000.000 kr.Brunabótamat38.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHafnargata 50, 230 ReykjanesbærSími420-4050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 28 myndir

Upp ↑