Opið hús 26. sept. kl. 13:00–13:30
1 af 27Um eignina
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 13.hæð með 2 svölum með einstöku útsýni í lyftuhúsi fyrir 60 ára og eldri við Gullsmára 9, Kópavogi.
* Aukin lofthæð.
* 2 svalir.
* Mikið þjónusta í boði.
* Veislusalur á 13.hæð.
Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 8201-1903, inga@palssonfasteignasala.is
Samkvæmt HMS er íbúðin skráð 59.1 fm2 ásamt sér geymslu í kjallara.
Forstofa með fataskáp og parket á gólfi.
Eldhús er opnu rými með stofu, fínn borðkrókur, innrétting með tengi fyrir uppþvottavél, rúmgott búr innan eldhúsinu.
Stofa er björt í opnu rými með eldhúsi með gluggum á tvo vegu, gengið er út á útsýnis svalir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott og bjart með góðu skápaplássi, útgengni á svalir og parket á gólfi.
Baðherbergi góð innrétting, sturta , tengi fyrir þvottavél. Dúkur á gólfi.
Myndadyrasími er íbúðinni.
Sérgeymsla er á fyrstu hæðinni.
Innangengt er í félagsmiðstöðina Gullsmára á jarðhæð hússins sem rekin er af félagi eldri borgara í Kópavogi. Þar er boðið er upp á ýmsa þjónustu s.s. hárgreiðslustofu, fótaaðgerðarstofu og margskonar félagsstarf ásamt matsal þar sem hægt er kaupa heita máltíð í hádeginu. Félagsstarfið í húsinu er sérstaklega öflugt og fjölbreytt, við allra hæfi. Á efstu hæð er rúmgóður samkomusalur sem mögulegt er að leigja gegn vægu gjaldi. Sameiginlegur snyrtilegur garður, púttvöllur með 18 holum.
Frábær staðsetning þar sem örstutt er í Smáralind, heilsugæslu, sundlaugar o.fl.
Góð og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað í Smárahverfi Kópavogs í nálægð við fjölbreytta þjónustu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gullsmári 9
201 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð59,1 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
64.900.000 kr.1.098 þ./m²
Byggingarár1996InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2223865Fasteignamat56.950.000 kr.Brunabótamat37.100.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 27 myndir
Upp ↑