fasteignasölur.is
Þelamörk 47
Opið hús 29. sept. kl. 17:00–18:00
1 af 23

Um eignina

CROISETTE kynnir í einkasölu endaraðhús við Þelamörk 47D, 810 Hveragerði. Þetta fallega fjögurra herbergja raðhús er á skjólgóðum stað, miðsvæðis í Hveragerði. Stærð íbúðar er skráð 129,8 m², samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Þrjú svefnherbergi eru í eigninni en auðvelt að bæta við fjórða herberginu. Fallegar og vandaðar innréttingar, tvö baðherbergi, þvottahús og geymsla. Malbikað bílastæði fyrir þrjá bíla og steypt sorptunnuskýli. Hellulögn er frá bílastæði að anddyri. Eignin er fullfrágengin að innan og utan með fullfrágenginni lóð og steyptu bílaplani. Þetta er vel skipulögð fjölskydu eign í hjarta Hveragerðis. Allar nánari upplýsingar veita Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is og Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT


Nánari lýsing:
Forstofa: er með parketi á gólfi og þaðan er innangengt í geymsluherbergi.
Eldhús: Opið rými með stofunni, aukin lofthæð. Rúmgóð innrétting með innbyggðum ísskáp og frysti, helluborð, vifta, tveir bakarofnar í vinnuhæð og innbyggð uppþvottavél.
Stofa: Opið rými með eldhúsi og borðstofu. Fallegar hljóðvistarplötur í lofti og innfelld lýsing. Útgengt er út á pall og garð til austurs.
Hjónaberbergi: Rúmgóð hjónasvíta með baðherbergi. Ggott skápapláss og útgengt á timververönd á baklóð. Baðherbergi með upphengdu salerni, innrétting með handlaug, speglaskápur og skúffupláss, handklæðaofn og "walk-in" sturta.
Barnaherbergi I: Gott herbergi, parket á gólfi, innbyggð lýsing.
Barnaherbergi II: Gott herbergi, parket á gólfi, innbyggð lýsing.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, innrétting með handlaug, gott skápa og skúffupláss, handklæðaofn og "walk-in"sturta.
Þvottahús: Flísar á gólfi, skolvaskur og innrétting með skápaplássi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurkara.

Húsið er staðsteypt, einangrað að utan með ál og timburklæðningu. Einhalla timburþak er á húsinu með Protan þakdúki. Gluggar eru trégluggar frá Gluggasmiðju Selfossar (tvöfallt K-gler). Útidyrahurð er timburhurð. Gólfhiti er í öllu húsinu og forhitari. Ídráttarrör fyrir heitum potti báðum megin við hús og bílastæði fyrir rafmagnsbíla.

Nánari upplýsingar veita: 
Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is 
Elín Auður Traustadóttir löggiltur fasteignasali í s: 858-0978 eða elin@croisette.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
 - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
 - Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
 - Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
 - Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 - Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Þelamörk 47

810 Hveragerði
TegundRað-/parhúsStærð129,8 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
87.900.000 kr.677 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2515855Fasteignamat88.450.000 kr.Brunabótamat77.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangKirkjuteigur 21, 105 RvíkSími569-9090

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑