fasteignasölur.is
Arnarsíða 5
1 af 40

Um eignina

Kasa fasteignir 461-2010.

Arnarsíða 5 - Falleg og vel skipulögð 4 herbergja raðhúsaíbúð á einni hæð með sambyggðum bílskúr og góðri, skjólsælli verönd til vesturs þar er heitur pottur. Eignin er skráð samtals 138,2 fm, þar af er bílskúr 25 fm. Eignin verður afhent að mestu nýmáluð að innan.

Eignin skiptist í:  Forstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými, þvottahús, bílskúr og geymslu.


Forstofa er með flísum á gólfi.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll með parketi á gólfum. Fataskápar eru í tveimur herbergjum og í hjónaherbergi er stór fataskápur með rennihurðum. Úr hjónaherbergi er útgengi á verönd.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtutækjum og glervæng, innrétting við vask, góður skápur, upphengt salerni og handklæðaofn. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Stofa og eldhús eru í björtu og góðu opnu rými. Parket er á stofurými og flísar á eldhúsrými. Í eldhúsi er góð innrétting með miklu skápaplássi, gashelluborði og ofni í vinnuhæð. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eigninni. Eldhúseyja veitir gott vinnupláss ásamt skúffum og skápum. Úr alrými er útgengi á góða verönd til vesturs.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílskúrs og er með flísum á gólfi. Þar er góð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Auka inngangur er um þvottahús og þaðan er jafnframt innangengt í bílskúr.
Bílskúr er flísalagður og með rafknúnum hurðaopnara. Inn af bílskúr er góð geymsla og úr henni er útgengi á verönd.

Annað
- Íbúð er að mestu nýmáluð.
- Hiti er í öllum gólfum eignarinnar.
- Hiti er í malbikuðu bílaplani framan við bílskúr og í steyptum stéttum framan við húsið.
- Framan við húsið er ruslatunnuskýli ásamt hellulagðri verönd með timburskjólveggjum.
- Góð steypt verönd er vestan við húsið með markísu og garði þar fyrir utan.
- Heitur pottur er á verönd.
- Ljósleiðari er í húsinu.
- Stutt er í leik- og grunnskóla.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.

Arnarsíða 5

603 Akureyri (utan Glerár)
TegundRað-/parhúsStærð138,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
101.900.000 kr.737 þ./m²
Byggingarár2005InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2274951Fasteignamat87.700.000 kr.Brunabótamat76.060.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangRáðhústorgi 1, 600 AkureyriSími461-2010

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑