fasteignasölur.is
Tildruslóð   17 hektarar
1 af 12

Um eignina

Elka Guðmundsdóttir, lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG, kynnir Tildruslóðir í Flóahreppi til sölu.
Um er að ræða sjö lóðir sem seljast saman í einu lagi og mynda áhugavert fjárfestingatækifæri fyrir þann sem vill þróa svæðið sem eina heild.
Lóðirnar eru skammt austan Stokkseyrar, nálægt strandlengjunni, í friðsælu umhverfi með víðsýni til fjalla og fjölbreyttu fuglalífi. Stutt er til Stokkseyrar og um 10 mínútna akstur á Selfoss, þar sem öll helsta þjónusta er í boði.

Um er að ræða fjórar frístundahúsalóðir og þrjár landbúnaðarlóðir. Tildruslóð 1, L239019, er 6.037 m², Tildruslóð 2, L239018, er 9.000 m², Tildruslóð 3, L239020, er 5.710 m² og Tildruslóð 5, L239021, er 6.780 m². Þetta eru frístundahúsalóðirnar fjórar.
Landbúnaðarlóðirnar eru Tildruslóð 4, L239022, sem er 37.031 m², Tildruslóð 6, L239023, sem er 43.292 m², og Tildruslóð 8, L239024, sem er 43.148 m².

Lóðirnar sjö eru samtals 150.998 m² - eða um 15 hektarar.
Með þeim fylgja hlutfallslegir eignarhlutar í 20.574 m² sameign fyrir vegstæði og opin svæði, L235690.
Samanlagt skráð stærð er því 171.572 m², eða um 17,16 hektarar.

Samþykkt deiliskipulag er fyrir svæðið og gerir ráð fyrir fjórum frístundahúsalóðum og þremur landbúnaðarlóðum. Á frístundahúsalóðunum er samkvæmt skipulaginu heimilt að byggja frístundahús ásamt gestahúsi eða geymslu, samtals allt að 150 m² á hverri lóð, með hámarksnýtingarhlutfallinu 0,03. Á landbúnaðarlóðunum er heimilt að byggja íbúðarhús ásamt útihúsum og geymslu, samtals allt að 350 m² á hverri lóð. Byggingar skulu vera innan afmarkaðra byggingarreita og í samræmi við aðra skilmála deiliskipulagsins og tilskilin leyfi.

Hér gefst kaupanda tækifæri til að eignast allar sjö lóðirnar í einni sölu og móta heildstæða framtíðarsýn fyrir svæðið. Fjölbreytni lóðanna og fyrirliggjandi deiliskipulag skapa möguleika á uppbyggingu í áföngum, hvort sem áherslan er á frístundabyggð, nýtingu landbúnaðarlóðanna eða samspil beggja svæða.

Lóðirnar seljast saman og í því ástandi sem þær eru við sölu. Vegur liggur að landinu en vegir inn á einstakar lóðir hafa ekki verið lagðir. Nánari upplýsingar um skipulag, aðkomu og lagnir eru veittar áhugasömum kaupendum.

Nákvæma staðsetningu má sjá hér: 


Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsd. í síma 863-8813 // netfang: elka@fstorg.is


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

Tildruslóð 17 hektarar

803 Selfoss (dreifbýli)
TegundJörð/LóðStærð0 m²
Tilboð
FasteignanúmerF2538264Fasteignamat7.670.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Allar 12 myndir

Upp ↑