fasteignasölur.is
Ásvellir 3 - 402
Opið hús 28. sept. kl. 16:30–17:30
1 af 13

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur Norðurlanda.  Íbúðirnar eru með samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði
Glæsileg 76,9fm tveggja herbergja íbúð á fjórðu hæð (efstu) í nýju 12 íbúða fjölbýlishúsi að Ásvöllum 3 ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 7,6fm. Svalir út frá stofu er skráð : 5,4fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, geymslu og stæði í bílageymslu. Ásvellir 3 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. Sjá nánar Heimasíða Ásvellir
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS. 
Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu. Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
 Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS. 
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með gluggum á tvo vegu útgengt út á 5,4fm suður svalirHjónaherbergi með fataherbergi innaf, skápar frá GKS. 
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum. Í kjallara er stæði í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 

1. Almenn lýsing
Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á
milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu
bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.
Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á
jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa
aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á
fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru
tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á
baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð
skilast fullfrágengin.
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt
auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus
búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki.
2. Frágangur íbúða
2.1 Veggir
Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikursteinum, grófpússaðir og sandspartlaðir. Veggir á baðherbergjum
eru flísalagðir með Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka. Veggir í þvottahúsum eru málaðir með
Svansvottaðri votrýmismálningu. Aðrir veggir eru málaðir með Svansvottaðri málningu
2.2 Gólf
Íbúðir verða afhentar Sunstone Freya 60x60 cm flísum frá Parka á gólfi á baðherbergjum og
þvottahúsum. Önnur gólf eru afhent án gólfefna.
2.3 Loft
Steypt loft eru slípuð, sandspörtluð og máluð með Svansvottaðri málningu. Loft á baðherbergjum og
þvottahúsum eru máluð með Svansvottaðri votrýmismálningu. Í loftum kunna að vera stokkar til að
hylja loftræsilagnir.
2.4 Hurðir
Inngangshurðir íbúða eru EI30-CS yfirfelldar spónlagðar hurðir. Hurðir innan íbúða eru sléttar
yfirfelldar í hvítum lit. Rennihurðir eru í hvítum lit. Allar hurðir innan íbúða eru keyptar í Parka.
1Ásvellir 3-9 SKILALÝSING
2.5 Rafmagn og lýsing
Raflagnir eru fullfrágengnar samkvæmt teikningum. Tenglar og rofar í íbúðum eru að tegundinni
Merten háglans fyrir utan tengla og rofa í eldhúsi þar eru þeir svartir af gerð ION V1/J1. Innan íbúða
eru LED loftljós í baðherbergjum, þvottahúsum og innfelld LED ljós í loftum á völdum stöðum. Íbúðir
eru búnar mynddyrasíma af gerð bticino.
Ljós á völdum stöðum eru búin dimmingu með Plejd-snjallkubbum, hægt er að stjórna þeim ljósum
með símanum ef sótt er Plejd-appið í snjallsíma. Kóði til að tengjast kerfinu er í rafmagnstöflu.
2.6 Eldhús
Eldhúsinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS. Skápar eru úr slitsterku melaminefni í viðar útliti í bland
við einlitt melaminefni. Borðplötur eru plastlagðar í gráum lit. Allar lamir og skúffubrautir eru með
mjúklokun. Skápar eru almennt með höldum fyrir utan efri skápa sem eru með þrýstiopnun. Lýsing er
undir efri skápum, sorpflokkunarkerfi er í vaskaskáp og hnífaparabakki í skúffu.
Helluborð kemur frá BORA og er keypt frá Trésmiðju GKS, önnur heimilistæki eru frá AEG og eru keypt
hjá Ormsson. Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð.
Blöndunartæki eru frá Nobili og vaskur er frá Schock en bæði er keypt frá Trésmiðju GKS.
2.7 Fataskápar
Fataskápar koma frá Trésmiðju GKS og eru úr einlitu melaminefni. Lamir og skúffubrautir eru með
mjúklokun.
2.8 Baðherbergi
Baðinnréttingar koma frá Trésmiðju GKS. Neðri skápur er skúffuskápur, lagður með einlitu
melaminefni. Efri skápur er speglaskápur með lýsingu fyrir ofan.
Vaskur er hvítur frá Alape með easy-clean húð sem heldur óhreinindum frá og er auðvelt að þrífa,
blöndunartæki er krómlitað frá Mora.
Blöndunartæki í sturtu eru krómlituð frá Hansa, handsturtuhaus er að tegundinni SKINNY frá Almar og
sturtuhaus er krómlitaður að tegundinni OKI frá Bossini.
Klósettskál er hvít að tegundinni Selnova frá Geberit með hvítri klósettsetu með hæglokun.
2.9 Þvottahús
Innréttingar í þvottahúsum koma frá Trésmiðju GKS. Fyrir neðan þvottavél og þurrkara eru
skúffuskápar og balagrind fyrir innan. Í efri skápi er loftræstisamstæða íbúðarinnar.
2.10 Hitakerfi
Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita, auk þess er handklæðaofn á baðherbergjum innan íbúða.
Sameignir eru kynntar með ofnakerfi skv. teikningum. Gólfhita er stýrt með þráðlausum hitanemum á
vegg rýmis, gæta skal að skipta þarf um rafhlöður í þráðlausum hitanemum öðru hvoru. Ofnakerfi í
sameign fylgir frágengið og verða vatnshitastýrðir lokar á því. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir fylgja
frágegnar skv. teikningum. Forhitari er á heitu neysluvatni.
2.11 Loftræsing
Loftræsikerfi með varmaendurvinnslu er í hverri íbúð, nauðsynlegt er að skipta um síu reglulega skv.
leiðbeiningum framleiðanda. Hefðbundið loftræsikerfi er í geymslum og bílakjallara.
3. Frágangur utanhúss
3.1 Klæðning
Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð.
2Ásvellir 3-9 SKILALÝSING
3.2 Þak
Þak er steypt plata og ofan á hana er uppstólað timburþak, vatnsvarið með ásoðnum pappa og klætt
með báruklæðningu í lit samkvæmt forskrift arkitekts.
3.3 Svalir
Svalir eru staðsteyptar og klæddar með Lunawood pallaefni. Svalahandrið eru úr áli og gleri frá Ál og
Gler. Útiljós og rafmagnstengill er á svölum. Svalaloft eru slípuð, grunnuð og máluð. Möguleiki er á
svalalokun samkvæmt aðalteikningum arkitekts. Glerlokun yrði þá frá Ál og Gler. sem kaupendur geta
keypt sjálfir frá þeim eftir á. Sjá nánar á aðalteikningum arkitekts.
3.4 Gluggar og útihurðir
Gluggar eru álklæddir timburgluggar settir í eftir á. Svalahurðir eru álklæddar málaðar tréhurðir settar
í eftir á. Opnanleg gluggafög fylgja frágengin og allar úti- og svalahurðir eru að fullu frágengnar með
þéttiköntum.
3.5 Lóð
landlagshönnuðar.
Lóð er frágengin með hellulögn, gróðurbeðum og grassvæðum í bland í samræmi við teikningar
4. Frágangur sameignar
4.1 Íbúðargangar, lyftu- og stigahús
Steyptir innveggir eru múraðir eða slípaðir, spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir í sameignum eru
annað hvort hlaðnir úr vikursteinum, grófpússaðir og málaðir eða reistir úr harðgipsi, spartlaðir og
málaðir. Póstkassar eru í anddyri hvers stigagangs fyrir viðkomandi íbúð. Í hverri sameign eru gólf á
inngangshæð flísalögð ásamt stiga og milli palli niður í kjallara og göngu leið út í bílakjallara. Aðrir stigar
og milli pallar eru teppalagðir ásamt íbúðagöngum á öðrum hæðum. Gólf á geymslugöngum eru
máluð.
4.2 Hurðir
Anddyris hurð ásamt inngangshurð inn í stigaganga eru úr áli frá Gluggatækni. Aðrar hurðir í
sameignum eru yfirfelldar timburhurðir keyptar í Parka og stálhurðir einnig keyptar í Parka.
Sjálfvirkur opnunarbúnaður er á hurðum í anddyri, inngangshurð að stigagangi og hurðum í
brunstúkum sem liggja að bílakjallara
4.3 Lyfta
Lyftur í húsinu eru að gerðinni Monospace 300DX frá KONE. Bak og hliðar veggir eru hvítir og
framveggur burstað ryðfrítt stál. Loft er hvítt með beinni LED lýsingu. Á öðrum hliðarveggnum er
handlisti með bogadregnum endum og á bakvegg er spegill.
4.4 Bílastæði
Á lóð eru 60 bílastæði og eru þar af 4 merkt hreyfihömluðum.
4.5 Bílageymsla
Bílageymsla er í kjallara hússins með máluðu lofti og plötuklæðningu þar sem við á. Útveggir verða
einangraðir að utan eða innanverðu eftir því sem við á. Hitablásarar og loftræsikerfi fylgja frágengin í
samræmi við teikningar. Gólf er steypt og vélslípað án frekari meðhöndlunar en bílastæði eru merkt.
Sprungur geta myndast á yfirborði gólfsins sem verða ekki meðhöndlaðar frekar. Hurð í bílageymslu
fylgir frágengin með sjálfvirkum opnunarbúnaði og einni fjarstýringu á hvert stæði. Rafmagnstengill
fylgir hverju stæði.
3Ásvellir 3-9 SKILALÝSING
4.6 Hjóla- og vagnageymslur
Hjóla og vagnageymslur eru í kjallara í sameiginlegum hluta húsanna.
4.7 Djúpgámar
Tvö djúpgámasett fyrir endurvinnslu og sorp eru staðsett á lóðinni, annarsvegar við Ásvelli 5 og hins
vegar við Ásvelli 11. Samtals tíu gámar.
5. Svansvottaðar íbúðir
Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt
byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.
Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni
hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota
bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr
stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur.
Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins
https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar/
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d.
gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af
þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er
hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús.


6. Áætlaður afhendingartími
Íbúðir á Ásvöllum 3-19 verða afhentar í áföngum á tímabilinu september 2026 – ágúst 2027
Ásvellir 3, 7 og 9 verða afhent í nóvember 2026
Ásvellir 5 verður afhent í desember 2026
Bílageymsla og lóð fyrir nyrðri hluta Ásvalla verður afhent í nóvember 2026
Bílageymsla og lóð fyrir syðri hluta Ásvalla verður afhent vor 2027
Allar breytingar á íbúðinni sjálfri og einstaka hluta í henni að ósk kaupanda hefur áhrif á
afhendingartíma til seinkunnar. Allar breytingar sem kaupendur hyggjast gera þarf að gera í samráði
við verkefnastjóra skriflega og mun hann meta hvort þær séu framkvæmanlegar. Íbúðareigandi er
sjálfur ábyrgur fyrir því að bæði söluaðilar efnis ásamt verkefnastjóra byggingarfélagsins séu upplýstir
um allar breytingar með pósti. Íbúðareigandi er sjálfur ábyrgur vegna viðbótarkostnaðar sem getur
myndast hjá byggingarfélaginu vegna þessara breytinga. Byggingarfélagið tekur ekki á sig ábyrgð vegna
skemmda sem kunna að verða á búnaði eða efnum sem íbúðareigandi hefur sjálfur sett inn í íbúðina
áður en formleg afhending hefur farið fram.

Ásvellir 3 - 402

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð76,9 m²Herbergi2Svefnherb.1Baðherb.1
79.900.000 kr.1.039 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2517747Fasteignamat2.376.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑