Um eignina
Við lokum aldrei!!!
Einstaklega bjart og fallegt 186,6m2 einbýlishús með mjög rúmgóðum bílskúr og stórkostlegu útsýniEinstakt tækifæri til að eignast fallegt og vel skipulagt einbýlishús á stórri lóð, þar sem náttúran og útsýnið njóta sín til fulls. Húsið stendur í rólegu og fallegu umhverfi með víðáttumiklu útsýni sem sífellt verður erfiðara að finna.
Eignin skiptist m.a. í:
- Þrjú rúmgóð svefnherbergi
- Bjarta og opna stofu og borðstofu sem mynda eina heild með glæsilegu útsýni
- Mjög rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum og beinu útgengi á verönd
- Stórt og opið eldhús með eyju, góðu skápaplássi, spónlagðri innréttingu og gráum borðplötum
- Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með ljósbrúnum flísum og fallegri innréttingu
- Gólfhiti í öllum rýmum
- Kamína í stofu sem skapar notalega stemningu
- Sterk og vönduð gólfefni
- Stór bílskúr
- Frábær og skjólgóð verönd
- Mjög stór lóð með miklum möguleikum
📍 Hér færðu heimili þar sem lífið fær að njóta sín.
Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar 773 5100 arnar@fastak.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Brúnahlíð 3
Staðsetning
Allar 20 myndir
Upp ↑


















