1 af 43
Um eignina
Eignamiðlun kynnir:
Suðurgata 33, 101 Reykjavík. Glæsilegt, einstaklega vel staðsett 157,4 fm parhús í hjarta borgarinnar. Húsið var byggt árið 1984. Sér-bílastæði, upphitað, við húsið. Húsið steinhús á pöllum, hannað af arkitektunum Sigurði Björgúlfssyni og Richard Briem. Fallegur bakgarður til austurs og suðurs með göngustíg og snotru garðskýli. Nýlega endurbyggður stór garðskáli til austurs og suðurs og er gengt úr honum beint út í garðinn. Marmaraflísar og parket á gólfum. Bakútgangur úr kjallara í garðinn.BÓKIÐ EINKASKOÐUN HJÁ ÞÓRARNI Á THORARINN@EIGNAMIDLUN.IS EÐA Í SÍMA 899-1882
Samkvæmt skráningu þjóðskrár er birt stærð hússins 157,4 fm
Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Nánari lýsing hússins:
1.HÆÐIN: FORSTOFA/ANDDYRI: Fallegt og bjart anddyri með fataskáp. Marmaraflísar á gólfi. BORÐSTOFA: Rúmgóð borðstofa með marmaraflísum og inn af henni er ELDHÚS: Vandað, fallegt eldhús, rennihurð með gluggum lokar af eldhúsinu ef vill. Góð tæki og slitsterk borð, upphitað gólf með marmaraflísum. SETUSTOFA/STOFA /GARÐSKÁLI: Gengið um marmaralagðar tröppur niður í stóra, nýlega endurbyggða, einstaklega bjarta setustofu/sólstofu með aukinni lofthæð, marmaraflísum á gólfi og sólvörðum glerhimni yfir. Úr sólstofu liggja dyr út í glæsilegan garð. GARÐUR: Skjólgóður garður er austan og sunnan húss með steinlagðri stétt og fjölbreyttum runna- og blómgróðri og stílfagurri útigeymslu með rennihurðum.
BAÐHERBERGI: Baðherbergið er með bæði baðkar og sturtu, ásamt innréttingu. Fallegar marmaraflísar bæði á gólfi og veggjum. Á næsta palli fyrir ofan er HERBERGI I: Rúmgott hjónaherbergi með parketi og skápum. HERBERGI II: Parketlagt barnaherbergi, nú notað sem skrifstofa. Á stigapalli er gengið út á góðar SVALIR til austsuðausturs með góðu útsýni og lítilli útigeymslu. Á efsta palli er HERBERGI III: Rúmgott og sérlega bjart, parketlagt herbergi með skápum og svefnlofti yfir hluta. Stór opnanlegur gluggi til austurs yfir svalir og með góðu útsýni. Tveir nýir, opnanlegir þakgluggar. Stigar upp á efstu þrjá pallana eru parketlagðir.
KJALLARI/NEÐSTA HÆÐ: Úr stofu er gengið niður í kjallara sem einnig er með bakinngangi og þar eru: SJÓNVARPSHOL: Rúmgott sjónvarpshol eða fjölskylduherbergi, sem mætti nýta sem fjórða svefnherbergið. Einnig er ÞVOTTAHÚS OG GEYMSLA, og er bakinngangur þar um kjallaratröppur og litla forstofu með fatahengi.
BÍLASTÆÐI: Hellulagt, upphitað einka-bílastæði er við suðurgafl hússins, rétt við útidyr. Þar má leggja tveimur litlum bílum eða einum stærri.
ÁSTAND HÚSS OG ÞAKS: Búið er að yfirfara þakið (2024), skipta um þakglugga, loftun aukin við mæni og við svalir í samráði við arkitekt hússins. Glerskálinn (af Schücho-gerð) hefur verið endurbyggður (2023), einnig í samvinnu við arkitekt hússins. Suðurgafl (áveðurshlið hússins) þarfnast múrviðgerða og móða er á nokkrum gluggum.
GÖNGULEIÐIR: Góðar gönguleiðir eru allt í kring, í Hólavallagarði, við Tjörnina, á Háskólasvæðinu, í Miðbænum og við sjóinn (Ægisíðu og höfnina).
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn M. Friðgeirsson Löggiltur fasteignasali, í síma 899-1882, tölvupóstur thorarinn@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurÍ sölu núnaÁsett verð · Eignamiðlun
169.900.000 kr.1079 þ./m²
+101,1% á 9 árum
2. mars 2018Fyrsta sala
84.500.000 kr.537 þ./m²
Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Suðurgata 33
101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundRað-/parhúsStærð157,4 m²Herbergi6Svefnherb.3Baðherb.1
169.900.000 kr.1.079 þ./m²
Byggingarár1984InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2002872Fasteignamat169.000.000 kr.Brunabótamat89.600.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 43 myndir
Upp ↑









































