fasteignasölur.is
Núpahraun 18
1 af 33

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

Um er að ræða virkilega fallegt 139 fm endaraðhús á einni hæð með bílskúr á góðum stað í Þorlákshöfn. Eignin er fullbúin að utan en byggingarár eignarinnar er skráð 2021. Í eigninni er mikil lofthæð, dúkur í lofti, rúmgóð herbergi, stórt og fallegt eldhús í björtu og opnu rými. Gólfhiti er í íbúðinni með stýringu. Einnig er upphituð steypt stétt í garðinum ásamt steyptu bílaplani með hitalögn. Heitur pottur í garðinum ásamt stórum timburpalli. 
Birt stærð íbúðarrýmis er 109,6 og bílskúrinn er 29,4 fm eða samtals 139 fm. 

SELJANDI SKOÐAR SKIPTI Á MINNI FASTEIGN. 

Nánari lýsingu má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - halldor@fastgardur.is


Skitping eignar: Anddyri, gangur, eldhús, stofa, sjónvarpsherbergi, tvö til þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og bílskúr. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott anddyri með góðum fataskáp, flísar á gólfi. Innangengt er í bílskúrinn frá anddyri. 
Hol: Rúmgott hol.
Svefnherbergi: Í dag eru tvö rúmgóð svefnherbergi en gert er ráð fyrir þriðja svefnherberginu en það er notað sem sjónvarpsherbergi í dag. Fataskápur er í hjónaherbergi.  
Flísalagt baðerbergi sem er mjög rúmgott með rúmgóðri sturtu með glerskilrúmi, fallegri innréttingu og upphengdu salerni. Í sama rými er aðstaða fyrir þvottavélar og útgengt út í suðurgarð. 
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu  með nægu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og góðum eldunartækjum. Opið er inn í stofu frá eldhúsi.  
Stofan og borðstofan er stór og björt með hárri loftæð og með innbyggðri led lýsingu og er dúkur í loftinu sem hjálpar mjög til með hljóðvist. Frá eldhúsi og stofu er stór rennihurð þar sem er útgengt út á verönd.

Bílskúr: góður 29,4 fm bílskúr með  innkeyrsluhurð, rafmagnsopnarar, vatni, rafmagni. Búið er að útbúa gott milliloft sem nýtist mjög vel. 

Góflefni: Parket á íbúðarrými fyrir utan þvottahús, baðherbergi og anddyri þar eru flísar. 

Lóð: Bílaplan er steypt og með hitalögn. Garðurinn er með góðri skjólgirðingu allan hringinn sem sem myndar gott skjól og næði. Einnig er virkilega veglegur timburpallur með heitum potti. Stýring fyrir heita pottinn er í bílskúrnum og er hann tengdur með snjallkerfi. 

HÉR ER UM AÐ RÆÐA VIRKILEGA FALLEGT OG VEL STAÐSETT FJÖLSKYLDUHÚS - STUTT ER Í GRUNN- OG LEIKSKÓLA, SUNDLAUG OG ÍÞRÓTTAHÚS, VERSLANIR, ALLA HELSTU ÞJÓNUSTU OG NÁTTÚRUNA - EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA. 

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
89.900.000 kr.647 þ./m²
+119,3% á 5 árum
15. september 2021Fyrsta sala
41.000.000 kr.295 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Núpahraun 18

815 Þorlákshöfn
TegundRað-/parhúsStærð139 m²Herbergi3Svefnherb.3Baðherb.1
89.900.000 kr.647 þ./m²
Byggingarár2021InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2510748Fasteignamat74.600.000 kr.Brunabótamat85.400.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑