fasteignasölur.is
Hof Land (6.5 hektara skiki og hús)
1 af 61

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala Akureyri kynna:

Friðlýst hús ásamt miklu tækifæri og rúmgóðum grónum landskika við Dalvíkurveg í Hörgársveit.

Húsið er um ræðir heitir Hof Land og hægt er að lesa sér til um friðlýsingu þess með að klikka hér.

Húsin hvíla á eignarlandi sem er 6,5 hektarar að stærð, mjög vel gróið skógi og túnum.

Aðeins er um 15 min akstur frá landareigninni og inn á Akureyri.

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Eignin skiptist í tvær aðskildar byggingar en er skráð á eftirfarandi hátt skv. fasteignaskrá:
  • 1820 er byggt gamla húsið - 69,1 fm að stærð - skráð 060101 og skráð sem geymsla, þótt það hafi verið nýtt sem hús.
  • 1930 er byggt við gamla húsið - viðbótin var 62,1 fm, skráð 01, skráð sem geymsla.
  • 1938 er byggt eitt hús sem tveir eignarhlutar - 030101 hlaða, 59,3 fm og 040101 hesthús, 62,6 fm.
  • 1963 er byggt aftur við gamla húsið - skráð sem einbýli, 65,7 fm.
Tekið skal fram að byggingarnar eru flestar í nokkuð slöku ástandi, sérílagi innanhúss, og þarfnast þær annað hvort endurnýjunar að miklu leiti eða etv. að þróa nálgun svæðis á annan hátt.

Þar er undanskilið elsta húsið sem er friðað og hafa eigendur unnið endurbætur á því skv. leiðbeiningum um friðuð hús, fengið styrki til þeirra verka og er gamla húsið sérstaklega fallegt á að líta að utan með mjög mikla sögu í anda þess að tíminn hafi stoppað, að innan.

Mögulegir kaupendur skulu því skoða land og húseignir með slíkt í huga og er vert að benda á að "Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun."

Búið er að útfæra í enda annars hússins baðherbergi og verönd við enda þess með heitum potti.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lifum Heima fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.





 

Hof Land (6.5 hektara skiki og hús)

604 Akureyri (dreifbýli)
TegundEinbýlishúsStærð318,8 m²Herbergi5Svefnherb.3Baðherb.2
Tilboð
Byggingarár1963InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2156919Fasteignamat41.805.000 kr.Brunabótamat70.820.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 61 myndir

Upp ↑