fasteignasölur.is
Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101
NýttOpið hús 26. sept. kl. 15:15–15:45
1 af 37

Um eignina

Viltu fasteignir kynna mikið endurnýjaða 68m2 3ja herbergja íbúð á jarðhæð í suðurhlíðum Kópavogs.

Í dag er eignin með tvö svefnherbergi þar sem búið er að færa eldhúsið inn í alrými. Ef það hentar kaupanda betur að vera með eldhúsið þar sem það var upphaflega, og eitt svefnherbergi, kemur til greina að seljandi aðstoði við að færa eldhúsið til baka.

Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning - Hægt að sýna með stuttum fyrirvara flesta daga - Frábær fyrstu kaup eða til útleigu.

Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit og önnur sölugögn eignarinnar.

Íbúðin er skráð 68,1 m2 og skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús/stofu saman í alrými og sér þvottahús/geymsla innan íbúðar.

Eignin er fyrir ofan götu innst í botnlanga rétt við Kópavogsdalinn. Góður garður til suðurs. Sér bílastæði.

Nýlega var lokið tasverður endurbótum á eigninni:

Ný eldhúsinnrétting og tæki - Baðherbergi algjörlega endurnýjað - Gólfefni endurnýjuð - Innihurðir endurnýjaðar - Allir ofnar endurnýjaðir á síðustu árum.

Nánari lýsing:

Frá bílastæði er gengið upp nokkur þrep og þaðan um sérinngang í góða forstofu.
Forstofa:
Rúmgóð með útskoti fyrir fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús/Stofa/Borðstofa: Samliggjandi í opnu og björtu rými með stórum gluggum til suðurs. Ný eldhúsinnrétting með innbyggðri uppþvottavél. Nýr bakaraofn og spansuðu helluborð frá Electrolux.
Baðherbergi: Ný endurgert. Flísalagt í hólf og gólf. "walk-in" sturta. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Svefnherbergi I: Bjart og rúmgott herbergi með útskoti fyrir þrefaldan fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi. Þetta herbergi var upphaflega eldhús og það er hægt að færa eldhúsið aftur til baka ef það hentar betur(raf-og vatnslagnir enn til staðar)
Þvottahús/Geymsla: Innan íbúðar er þvottahús með tengi fyrir þvottavél/þurrkara. Einnig eru lagnir fyrir ræstivask. Geymslan inn af þvottahúsinu er góð og rúmar t.d. vel skápa eða hillur. Eins er veggpláss sem má nota t.d til að hengja snúrur.
Garður: Gróinn og skjólgóður garður sem snýr í suður og austur.
Bílastæði: Eitt hellulagt bílastæði með snjóbræðslu fylgir íbúðinni. Frekar auðvelt að koma upp rafbílahleðslu.

Hér er á ferðinni frábært tækifæri til að kaupa mikið endurnýjaða eign á vinsælum stað í suðurhlíðum Kópavogs.

Nánari upplýsingar um eignina veita Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Einnig er hægt er að bóka skoðun beint hjá eiganda í síma 845-9000 eða thorhildur@thorhildur.com

Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun frá 995.000 kr. m.vsk
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Hlíðarhjalli 30 - íbúð 101

200 Kópavogur
TegundHæðStærð68,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
66.500.000 kr.977 þ./m²
Byggingarár1988InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2061797Fasteignamat66.550.000 kr.Brunabótamat40.550.000 kr.
Skráð hjá
Kristján SamúelssonLöggiltur fasteignasali777-0191 · kristjan@viltu.is
HeimilisfangBæjarlind 2, 201Sími583-5000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑