fasteignasölur.is
Ásvellir 7 - 403
Opið hús 28. sept. kl. 16:30–17:30
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan TORG kynnir : Vandaðar nýjar 2-4ra herbergja íbúðir að Ásvöllum 3-9,  þar sem allt byggingarefnir uppfyllir ströngustu umhverfiskröfur Norðurlanda.  Íbúðirnar eru með samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. sem tryggir hágæða innivist, frábæra hljóðvist og fullkomið loftskiptakerfi sem tryggir hreint loft og hámarks heilbrigði.
Glæsileg 122,6fm fjögurra herbergja íbúð á fjórðu hæð í nýju 24 íbúða fjölbýlishúsi ásamt stæði í bílgeymslu. Geymsla íbúðar er skráð : 15,9fm. Eignin skiptst í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, 2 baðherbergi, 3 svefnherbergi, geymslu og stæði nr B20  í bílageymslu. Ásvellir 7 er nýtt 4 hæða fjölbýlishús sem er einstaklega vel staðsett við Haukaheimilið og Ásvallalaug. Stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla. Traustur byggingaaðili Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. 
Sjá nánar  ÁSVELLIR
Allar nánari upplýsingar og skoðun veitir Sigríður Rut löggiltur fasteignasali í gsm : 699-4610 eða siggarut@fstorg.is og Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 / Helgi@fstorg.is 


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa góðum fataskáp frá GKS.
 Eldhús með fallegri innréttingu frá GKS. Helluborð frá BORA og önnur heimilistæki er frá AEG. Borðplöturn eru plastlagðar í gráum lit Kæli- og frystiskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingu.  Eldhús er opið við stofu og borðstofu.
Þvottahús / Búr er innaf eldhús með innrétting frá GKS.  Opnanlegur gluggi
Stofa og borðstofa eru rúmgóð með gluggum á tvo vegu útgengt úf á svalir. Hærri lofthæð.
 Hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi innaf, skápar frá GKS. 
2 Svefnherbergi með skápum frá GKS. 
Baðherbergi með walk in sturtu, innréttingu við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi og veggjum.
 Í kjallara er stæði nr B20 í lokaðri bílageymsla og góð sér geymsla.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara. Fallegur frágangur. 
Afhending í nóv. 2026

Ásvellir 3-19 eru 7 byggingar og 9 stigahús með samtengdum bílakjallara neðanjarðar undir garði á milli húsanna. Ein innkeyrsla er í bílakjallarann og þar eru samtals 101 bílastæði ásamt sameiginlegu bílaþvottastæði. Auk bílastæða í bílakjallara eru 60 bílastæði á lóð.  Húsin eru staðsteypt, einangruð og klædd að utan með álklæðningu og sementsbundnum plötum á jarðhæð. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Ásvellir skiptast í 9 stiga- og lyftuhús sem öll hafa aðgengi að bílakjallaranum úr sameign. Á jarðhæð eru aðalinngangar fyrir hvert stigahús fyrir sig. Á fyrstu hæð fylgja sérafnotareitir en á efri hæðum eru svalir sem fylgja öllum íbúðum. Í húsinu eru tveggja til fimm herbergja íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna, en með flísum á baðherbergjum og þvottahúsum. Með flestum íbúðum fylgir stæði í bílageymslu. Sameign og lóð skilast fullfrágengin. Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða gilda ef upp kemur misræmi milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga- og kynningarefni eins og tölvugerðar myndir og teikningar eru eingöngu til hliðsjónar. Laus búnaður o.þ.h. sem sýndur er á teikningum en er ekki talinn upp í skilalýsingu fylgir ekki. 

Íbúðirnar á Ásvöllum eru Svansvottaðar samkvæmt útgáfu 3 fyrir nýbyggingar. Það þýðir að allt byggingarefni sem sett er í bygginguna hefur verið samþykkt og uppfyllir kröfur Svansins.  Meginmarkmið Svansvottunar er að draga úr umhverfisáhrifum bygginga, sporna við hnattrænni hlýnun og vernda heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma sem og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkun. Kröfurnar ná einnig til gæðastjórnunar á verkstað, en skýr stýring á umhverfisþáttum og gæðastjórnun helst oft í hendur. Nánari upplýsingar um Svansvottun má finna á heimasíðu umhverfismerkisins Svansins https://svanurinn.is/voruflokkar/byggingar
Gæta skal að því byggingarefni sem keypt eru inn í íbúðina uppfylli þessar kröfur Svansins eins og t.d. gólfefni, undirlag, málning og kítti. Byggingarefni sem er umhverfisvottað og er með einhvern af þessum stimplum á umbúðunum uppfyllir sjálfkrafa kröfur Svansins. Ef ekki er stimpill til staðar er hægt að spyrja sölumenn hvort efnið sé leyfilegt til notkunar í Svansvottuð hús. 




 

Ásvellir 7 - 403

221 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð122,6 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.2
122.900.000 kr.1.002 þ./m²
Byggingarár2025InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF2517747Fasteignamat2.376.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑