Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 25 ÁR.
Perla Investments kynnir : Lúxus einbýlishús í Las Fillipinas
Nýtt og glæsilegt verkefni í Las Filipinas við Orihuela Costa sem samanstendur af aðeins sjö sjálfstæðum lúxus einbýlishúsum. Svæðið rólegt, með stuttri fjarlægð í alla helstu þjónustu, verslanir, veitingastaði og verslunarmiðstöðvar. Fallegar sandstrendur Costa Blanca eru innan við 5 km frá eignunum.
Í boði eru tvær mismunandi gerðir af nútímalegum einbýlishúsum, báðar með einkasundlaug og bílastæði innan lóðar.
Einnar hæðar einbýlishúsin eru með þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, þar af einu en-suite. Þau eru um 113 fm á rúmgóðum lóðum sem eru tæplega 300 fm.
Tveggja hæða einbýlishúsin með kjallara eru um 260 fm á lóðum yfir 220 fm. Þar eru þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, tvær verandir á efri hæð og rúmgóður kjallari sem hægt er að nýta sem skrifstofu, sjónvarpsherbergi, líkamsrækt eða leikherbergi.
Báðar gerðir bjóða upp á möguleika á þaksvölum gegn aukagjaldi og einnar hæðar einbýlishúsin geta einnig verið með kjallara.
Húsin eru hönnuð með opnu skipulagi þar sem eldhús og stofa tengjast saman og stórir gluggar veita góða birtu og aðgengi að verönd og einkasundlaug. Eignirnar eru afhentar með vönduðum frágangi, þar á meðal forlögn fyrir loftræstikerfi, gólfhita á baðherbergjum og fullbúnum baðherbergjum.
Staðsetningin er góð með stuttri akstursfjarlægð að golfvöllum, ströndum og La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðinni. Alicante flugvöllur er um 55 km frá svæðinu.
REF: NB-50609
Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar!
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á- https://perlainvest.com/eign/6780/luxus-einbylishus-i-las-fillipinas/
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.comeða sendu okkur línu á info@perlainvest.com. Allar upplýsingar eru veitar í síma8933911 eða0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com
Perla Inv. - Lúxus einbýlishús í Las Fillipinas, Villamartín
Allar 10 myndir
Upp ↑








