fasteignasölur.is
Básahraun 22
1 af 40

Um eignina

Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Básahraun 22, 815 Þorlákshöfn:

Um er að ræða einstaklega glæsilegt og vel viðhaldið 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 231,5 fermetrar, þ.a. er íbúðarhluti 185 fm. og bílskúr 46,3 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með  ca. 70 fm suðvestur sólpall og heitum potti. Húsið er vel staðsett innarlega í botnlanga. Lóðin hlaut umhverfisverðlaun Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2026 í flokknum „Falleg einbýlishúsalóð“.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAX

Eignin skiptist í anddyri, stofu og borðstofu, sjónvarpsstofa / arinstofa, eldhús, hol / gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan bílskúr / geymsla.

Lýsing eignar:
Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum. 
Stofa / sjónvarpsstofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Borðstofa: Með parket á gólfi.
Arinstofa: Arinstofa með glæsilegum arni og náttúruflísum á gólfi og útgengi út á suðvestur sólpall.
Eldhús: Með góðri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, 2 bakaraofnar og er annar þeirra combi ofn, spanhelluborð og vifta, náttúruflísar á gólfi. 
Hol / gangur: Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með stórum fataskápum og vinylparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, baðker og stór sturtuklefi, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Nýleg innrétting fyrir þvottavélar í vinnuhæð og skóskápur, vinnuborð og vaskur, gönguhurð út í anddyri, flísar á gólfi. 
Bílskúr / geymsla: Tvöfaldur 46,5 fm. bílskúr, gönguhurð út í anddyri, nýjar bílskúrshurðir, rúmgott geymsluloft, rafhleðslustöð sem fylgir með, vinnuborð, kalt vatn og hiti, inn af bílskúr er góð geymsla með hillum, flísar á gólfi.

Húsið: Húsið er steypt og byggt 1983. Húsið hefur alla tíð fengið gott viðhald. Allar gardínur geta fylgt með. Flest ljós geta fylgt með.
Lóð: Einstaklega glæsileg 675 fm. lóð. Lóðin hlaut umhverfisverðlaun Sveitarfélagsins Ölfuss árið 2026 í flokknum „Falleg einbýlishúsalóð“. Framan við húsið er hellulögð stétt að húsi og pallur við anddyri er flísalagður. Framan við bílskúr er hellulögð innkeyrsla með hitalögn. Á norður og vestur hlið er hellulögð stétt, á suðvesturhlið er skjólgóður ca. 70 fm sólpallur með heitum potti, á suður og austurhlið er svo gras og fallegur gróður. 
Staðsetning: Smellið hér. 

Hér er um að ræða virkilega fallegt og vel viðhaldið fjölskylduhús á góðum stað - Stutt er í leik- og grunnskóla, íþróttamannvirki, sundlaug, verslanir og aðra helstu þjónustu. Þorlákshöfn býður jafnframt upp á nálægð við fjölbreytta náttúru og góðar samgöngur til höfuðborgarsvæðisins og nágrannasveitarfélaga - Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is. 

 

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Básahraun 22

815 Þorlákshöfn
TegundEinbýlishúsStærð231,5 m²Herbergi6Svefnherb.4Baðherb.1
119.900.000 kr.518 þ./m²
Byggingarár1983InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2212122Fasteignamat83.650.000 kr.Brunabótamat124.050.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 40 myndir

Upp ↑