fasteignasölur.is
Tjarnarlundur 8
1 af 13

Um eignina

Við lokum aldrei!!!

Góð eign með frábæru útsýni
Tjarnarlundur 8E – mjög smekkleg þriggja herbergja íbúð á þriðju hæð

Komið er inn í forstofu með ljósum flísum á gólfi og fatahengi.
Eldhúsið er með hvítri sprautulakkaðri innréttingu, gráum flísum á gólfi og hvítum flísum á milli efri og neðri skápa, keramikhelluborð og góður ofn.
Í Íbúðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með ljósu parketi á gólfum. Í hjónaherbergi eru góðir fataskápar með hvítum sprautulökkuðum hurðum.
Stofan er rúmgóð og björt með fallegu útsýni til vesturs.
Baðherbergið hefur verið nokkuð endurnýjað og er með baðkari, svörtum mósaíkflísum á baðkarshlið og á vegg fyrir ofan baðkarið, hvítum hreinlætistækjum, handlaug og hvítri innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél á baðherberginu.
Íbúðin býður upp á mikið og fallegt útsýni til suðurs og vesturs og nýtur góðrar birtu.
Sérgeymsla í sameign og sameiginleg hjólageymsla. 
Eignin er í einkasölu hjá Fasteignasölu Akureyrar. 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

5 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasala Akureyrar
44.900.000 kr.592 þ./m²
+0,9% á 1 ári
5. maí 2025Þinglýstur kaupsamningur
44.500.000 kr.587 þ./m²
+14,1% á 3 árum
7. júní 2022Þinglýstur kaupsamningur
39.000.000 kr.515 þ./m²
+62,5% á 2 árum
27. desember 2019Þinglýstur kaupsamningur
24.000.000 kr.317 þ./m²
+28,3% á 3 árum
9. nóvember 2016Þinglýstur kaupsamningur
18.700.000 kr.247 þ./m²
+49,6% á 5 árum
10. maí 2012Fyrsta sala
12.500.000 kr.165 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tjarnarlundur 8

600 Akureyri
TegundFjölbýlishúsStærð75,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
44.900.000 kr.592 þ./m²
Byggingarár1975InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2151217Fasteignamat43.350.000 kr.Brunabótamat44.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkipagata 1, 600Sími460-5151

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 13 myndir

Upp ↑