fasteignasölur.is
Arnarhraun 11
Opið hús 28. sept. kl. 18:00–18:30
1 af 36

Um eignina

RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Rúmgóða og bjarta 4ra herbergja íbúð við Arnahraun 11 í Hafnarfirði.

SKOÐAÐU EIGNINA Í 3D HÉR - EKKI ÞÖRF Á SÉR FORRITI


2026: Húsið múrviðgert
2025: Skólplagnir endurnýjaðar að hluta og fóðraðar.
2023–2024: Eignin máluð að hluta og gluggalistar málaðir.
2023: Nýtt rafmagn dregið í stofu, eldhús og hjónaherbergi
2023: Nýir ofnar í stofu og hjónaherbergi
2023: Eldhús endurnýjað, með marmaraborðplötu.
2022: Þakjárn endurnýjað og teki í gegn
2015: Baðherbergi endurnýjað


Skipulag eignarinnar telur: Forstofu/anddyri, stofu, eldhús/borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Þvottahús er í sameign ásamt sérgeymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri er opið inn í alrýmið með góðum forstofuskáp.
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og bjartar með parketi á gólfi.
Eldhús var endurnýjað árið 2023. Góð innrétting með miklu skápaplássi og vinnuplássi. Marmaraborðplata, ofn í vinnuhæð, undirlímdur vaskur og innfellt helluborð. Innbyggður ísskápur og frystir. Parket á gólfi.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi III með parketi á gólfi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, með stórri sturtu og innréttingu með vaski. Upphengt klósett og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.

Þvottahús er í sameign.
Sérgeymsla er í sameign, um 4,5 m² að stærð.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is

Arnarhraun 11

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð98,3 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.900.000 kr.813 þ./m²
Byggingarár1966FasteignanúmerF2073355Fasteignamat63.500.000 kr.Brunabótamat55.450.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑