fasteignasölur.is
Hallgerðargata 1
Opið hús 28. sept. kl. 17:30–18:00
1 af 17

Um eignina

**OPIÐ HÚS MÁNUDAGINN NK. 17:30 - 18:00** 

Fasteignasalan TORG kynnir:


Mjög stílhreina, fallega og nýlega 42,3 m² stúdíóíbúð við Hallgerðargötu 1A, íbúð 102.
Um er að ræða nútímalega íbúð í fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2023. Íbúðin skiptist í forstofu með góðum fataskáp, afmarkað svefnrými, gott og bjart alrými með eldhúsi, baðherbergi og svölum. Eldhúsið er vel útbúið með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Með íbúðinni fylgir rúmgóð geymsla í kjallara, um 3,7 m² að stærð. Þar er hátt til lofts og góð aðstaða í sameign fyrir vagna og hjól.

Eignin er í útleigu í dag - möguleiki er að yfirtaka leigusamning. 

Hafliði Halldórsson, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, veitir allar nánari upplýsingar í síma 767-5555 eða í gegnum netfangið Haflidi@fstorg.is.

Nánari lýsing:

Forstofa er með góðum fataskáp.
Eldhúsinnrétting er á einum vegg, sérsmíðuð og vel útfærð með AEG spanhelluborði, blástursofni, innfelldri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp.
Svefnrýmið er stúkað af inn af alrýminu og þar eru góðir fataskápar.
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og að hluta til á veggjum. Þar er snyrtileg innrétting með góðu skápaplássi og vaski, upphengt salerni ásamt innréttingu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þá er einnig handklæðaofn.
Gólfefni íbúðarinnar er harðparket og flísar á baðherbergi.

Hægt er að leigja bílastæði í upphitaðri bílageymslu gegn gjaldi. Þar er einnig aðgengi að bílastæðum með rafhleðslu fyrir rafbíla.

Fallegt sameiginlegt útisvæði er á milli bygginganna, með leiktækjum fyrir börn. Staðsetningin er góð, en í næsta nágrenni eru fjölbreytt útivistar- og náttúrusvæði, bæði í Laugarnesi og við Laugardal. Sundlaug, líkamsrækt, gönguleiðir og öll helsta þjónusta eru í góðu göngufæri.

Hallgerðargata 1

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð42,3 m²Herbergi1Baðherb.1
53.900.000 kr.1.274 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2517485Fasteignamat53.350.000 kr.Brunabótamat36.650.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 17 myndir

Upp ↑