Um eignina
Miklaborg kynnir: Björt og sjarmerandi 3ja herbergja íbúð á efstu hæð við Sólvallagötu 37 í miðbænum. Íbúðin er vel skipulögð og er 68,2 fm samkvæmt HMS en er talsvert stærri þar sem hluti er undir súð og einnig er geymsla í kjallara sem er ekki skráð inn í fm tölu eignar. Eignin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, tvö svefnherbergi, eldhús, og stofu með útgengi út á svalir sem snúa í suð-vestur með útsýni.
Bókið einkaskoðun hjá Írisi Örnu, löggiltum fasteignasala í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is eða Móeiði Svölu, löggiltum fasteignasala í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Nánari lýsing
Forstofa/hol: Gengið er inn í rúmgott hol sem tengir saman svefnherbergi, baðherbergi og eldhús- og stofurými.
Eldhús og stofa: Björt og rúmgóð stofa með útgengi út á suðvestur svalir og útsýni yfir skjólgóðan sameiginlegan garð ásamt útsýni yfir vesturbæinn. Eldhúsið er samliggjandi við stofuna og er með hvítri og snyrtilegri eldhúsinnréttingu. Eldhústæki voru endurnýjuð fyrir nokkrum árum þegar eldhúsið var fært inn í stofuna. Fallegt eikarparket prýðir gólfin.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi sem var nýlega endurnýjað, með upphengdu salerni, innréttingu og sturtuklefa.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum, eikarparket er á gólfum. Geymslu súð liggur meðfram svefnherbergjunum.
Svefnherbergi: Með eikarparketi á gólfi.
Geymsla og sameign: Sameignin er afar snyrtileg og vel viðhaldin. Í húsinu er aðeins fjórar íbúðir. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla. Lítil sérgeymsla fylgir íbúðinni sem er ekki skráð í fm tölu eignar. Óskráð geymslupláss í risi fylgir einnig.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is eða Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 8998278 eða moa@miklaborg.is
Sólvallagata 37
Staðsetning
Allar 25 myndir
Upp ↑























