fasteignasölur.is
Björkurstekkur 19
1 af 24

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Vel skipulagt, snyrtilega innréttað endaraðhús við Björkurstekk 19 í göngufæri frá Stekkjarskóla. Íbúðin er 116,2 fm að stærð. Húsið er byggt úr timbri árið 2022 og er klætt að utan með viðhaldsléttri báruklæðningu. Sólpallur ca 80 fm er við húsið með heitum pott, skjólgirðingu og geymsluskúr. Drenmöl í bílaplani og ruslatunnuskýli.    

Innra skipulag: Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu, öll með fataskápum.  Forstofa með stórum fataskáp. Borðstofa-, stofa og eldhús eru í opnu og björtu alrými og útgengt út á stóran sólpall og í framhaldi af sólpalli er fín grasflöt. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Í eldhúsi er snyrtileg innrétting með fínum heimilistækjum og veggfastri eyju. Í alrýminu eru veggfastir glerskápar með lýsingu og einnig er innbyggður fataskápur á gangi.  Flísalagt baðherbergi, innrétting, stór spegill með óbeinnri lýsingu, upphengt wc og "walk in" sturta með glervegg. Niðurtekið loft, hvítar loftaþiljur og geymslurými í háalofti. Flísar eru á votrýmum en vínylparket á öðrum stöðum. Svæðaskiptur gólfhiti.
Virkilega snyrtilegt og vel umgengið raðhús!  

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir     
  
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Björkurstekkur 19

800 Selfoss
TegundRað-/parhúsStærð116,2 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
79.800.000 kr.687 þ./m²
Byggingarár2022InngangurSérinngangurFasteignanúmerF2519189Fasteignamat79.300.000 kr.Brunabótamat61.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑