fasteignasölur.is
Breiðavík 39
Opið hús 28. sept. kl. 18:00–18:30
1 af 34

Um eignina

Nýtt á skrá! Breiðavík 39 Reykjavík - Vel skipulögð, mikið endurnýjuð og frábærlega staðsett 3ja herb. íbúð með suðursvölum og tveimur sérmerktum stæðum í opnu bílskýli

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega, mikið endurnýjaða og vel skipulagða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð í fallegu fjölbýlishúsi við Breiðavík 39 í Reykjavík. Íbúðin er alls 87,1 fermetrar að stærð (þar af er geymsla 4,6 fermetrar) og auk tveggja sérmerktra bílastæða í opnu bílskýli (skráð 46,8 fermetrar) sem gerir samtals 133,9 birta fermetra. Rúmgóð stofa með gluggum til suðurs. Útgengi á svalir til suðurs sem snúa inn í bakgarð hússins. Fallegt útsýni er frá íbúð út á sundin og til fjalla. Sérinngangur er í íbúð af opnum svölum.

Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2020 þar sem eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð á afar fallegan máta ásamt því að gólfefni og innihurðir var endurnýjað innan íbúðar. *Auk þess voru drenlagnir sunnanmegin við húsið endurnýjað árið 2025.

Snyrtilegt sameiginleg hjóla- og vagnageymslu með útgengi á bak- og framlóð hússins. Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu og malbikuð sameiginleg bílastæði með fjórum rafhleðslustöðvum. 

Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað í Víkurhverfi í Reykjavík þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, menntaskóla, íþróttasvæði, golfvöll, Egilshöll auk verslunar, þjónustu og veitingastaði. Glæsilegar hjóla- og gönguleiðir í nágrenni við náttúruna, fjöruna og sjóinn.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Útgengi á svalir frá stofu. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins.
Eldhús: Er fallega endurnýjað með harðparketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Stál Siemens bakaraofn, innb. uppþvottavél og Elica spansuðu helluborð með innb. viftu. Borðkrókur og gluggi til suðurs.
Baðherbergi: Er endurnýjað á mjög smekklegan máta. Flísar á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta, innrétting við vask, handklæðaofn og upphengt salerni. 
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tenglum fyrir þvottavél/þurrkara, vaski, vinnuborði og hillum.
Svefnherbergi I: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.
Geymsla: Er 4,6 fermetrar og er staðsett á jarðhæð hússins. 

Sérstæði: Tvö sérstæði í opnu bílskýli fylgja íbúðinni austan megin við húsið.
Hjóla- og vagnageymsla: Með máluðu gólfi, hjólasnögum og útgengi á fram- og baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Breiðavík 39

112 Reykjavík · Grafarvogur
TegundFjölbýlishúsStærð133,9 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
75.900.000 kr.567 þ./m²
Byggingarár1997InngangurSérinngangurBílskúrJáFasteignanúmerF2232100Fasteignamat74.350.000 kr.Brunabótamat67.630.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑