fasteignasölur.is
Grandavegur 47
1 af 39

Um eignina

Valhöll kynnir bjarta og vel skipulagða 3ja herbegja íbúð á 4.hæð í þessu vinsæla húsi fyrir 60 ára og eldri á Grandavegi 47, 107 Reykjavík. Óhindrað og glæsilegt útsýni út á Flóann, yfir Snæfellsjökul, Akrafjall, Skarðsheiði og Esjuna. Húsið var steypuviðgert og málað að utan árið 2019.

Eignin er skráð 94,1 fm á stærð og skiptist í 86,6 fm íbúð og 7,5 fm geymslu á jarðhæð.

Veislusalur og húsvörður eru í húsinu.

Eignin er ætluð 60 ára og eldri og þurfa kaupendur samkvæmt áhvílandi kvöð á eigninni að vera í Félagi eldri borgara (www.feb.is)


Nánari lýsing:
Anddyri / hol: með fataskáp og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: með björtum glugga í norðvestur með glæsilegu útsýni, parketi á gólfi og útgengi á 6 fm svalir.
Eldhús: með innréttingu á tveimur veggjum með fínu skápaplássi, ofni í vinnuhæð, borðkrók og kork á gólfi.
Baðherbergi: með sturtu, flísum á veggjum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi 1: með tveimur fataskápum, vinnuborði og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 2: með fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús: innan íbúðar með skolvaski og korki á gólfi.
Geymsla: 7,5 fm sérgeymsla á jarðhæð.

Sameign:
Góð aðstaða er í sameign húsins s.s. setustofur og útisvæði. Á 10. hæð er veislusalur sem íbúar hafa aðgang að ásamt því að jarhæð er æfingasalur ásamt gufubaði og sameignlegur heitur pottur á aflokuðum palli.

Húsvörður:
Húsvörður er í húsinu sem sér um létt viðhald í sameign, umhirðu sameignar ásamt umhirðu á lóð húsins.

Hússjóður:
Þessi íbúð er núna að greiða 34.293 kr. í húsgjöld á mánuði.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Björn Sturluson löggiltur fasteignasali / lögfræðingur í síma 699-4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Grandavegur 47

107 Reykjavík · Vesturbær
TegundFjölbýlishúsStærð94,1 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
70.900.000 kr.753 þ./m²
Byggingarár1989InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2024815Fasteignamat78.900.000 kr.Brunabótamat51.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑