fasteignasölur.is
Suðurbraut 5
1 af 42

Um eignina

Suðurbraut 5, Miðfell við Þingvallavatn, Bláskógabyggð.

Snoturt sumarhús ásamt geymsluskúr á 3.175 fm eignarlóð í sumarhúsabyggð í landi Miðfells við Þingvallavatn.
Við húsið er rúmgóður timburpallur, að hluta yfirbyggður, og viðbygging með útisturtu. Aðkoma að eigninni er um læst hlið sem er sameiginlegt fyrir þrettán sumarbústaði.


Samkvæmt fasteignaskrá HMS er skráð byggingarstærð 25,0 fm og byggingarár 2012. Að sögn eiganda var húsið flutt á lóðina árið 2012 og eftir það var byggt við húsið og geymsluskúr reistur.

Nánari lýsing:
Inngangur og svefnherbergi:
Gengið er inn í húsið um viðbyggt svefnherbergi. Herbergið er með ljósum veggjum og lofti, glugga og gólfefni með viðaráferð. Úr svefnherberginu er gengið inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss.

Stofa og eldhús eru í opnu rými með viðarklæddum veggjum og lofti.  Í stofu er gluggi. Viðargólf. Eldhúsaðstaðan er með hvítri innréttingu, efri og neðri skápum, dökkri borðplötu og stálvaski.

Salerni er með viðarklæddum veggjum, glugga, salernisskál, handlaug og speglaskáp. Þar er einnig hitakútur fyrir neysluvatn.

Útisturta og viðbygging: Við aðalhúsið er lokuð viðbygging með inngangi af pallinum. Þar er útisturta með yfirhaus og handsturtu. Rýmið er með timburgólfi og ljósgegndræpu þaki sem hleypir inn dagsbirtu. Það er jafnframt nýtt til geymslu yfir vetrartímann.

Geymsluskúr: Við pallinn stendur rauðmálaður timburskúr með mænisþaki og inngangi af pallinum. Í skúrnum er lítið milliloft sem nýtist til viðbótar við gólfpláss. Innri frágangur er ófullgerður og einangrun og plastdúkur sýnileg í veggjum og lofti. Skúrinn nýtist til geymslu á verkfærum, garðáhöldum og útivistarbúnaði.

Útisvæði og lóð: Rúmgóður timburpallur liggur meðfram fleiri en einni hlið sumarhússins og tengir það við geymsluskúrinn. Þar er aðstaða til útiveru og samveru, bæði undir berum himni og á yfirbyggðum hluta pallsins.

Lóðin er 3.175 fm eignarlóð með náttúrulegum hraungróðri, mosa, kjarri og trjám.

Aðkoma og bílastæði:  Aðkoma er um læst hlið sem þrettán sumarbústaðir nýta sameiginlega. Malarlögð aðkoma liggur að húsinu og bílastæðapláss er við það. Eigandi hefur lagfært innkeyrsluna og veginn að bústaðnum.

Aðstaða fyrir hjólhýsi: Að sögn eiganda hefur hann geymt hjólhýsi sitt á bak við húsið yfir vetrartímann, í góðu skjóli, og haft þar aðgang að rafmagni fyrir hjólhýsið.

Rafmagn: Að sögn eiganda var nýlega komið á nýrri rafmagnstengingu inn í húsið.

Útivist og nágrenni: Eignin er í fallegu náttúrulegu umhverfi við Þingvallavatn. Að sögn eiganda hefur hann haft bát við bústaðinn sem hann hefur nýtt til siglinga á vatninu og stundað veiðar líka.

Árgjald í félag sumarhúsaeiganda á svæðinu er kr. 35.000 á ári. 

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@hfs.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Suðurbraut 5

806 Selfoss (dreifbýli)
TegundSumarhúsStærð25 m²Herbergi1Svefnherb.1Baðherb.1
18.900.000 kr.756 þ./m²
Byggingarár2012InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF2346716Fasteignamat17.450.000 kr.Brunabótamat18.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 42 myndir

Upp ↑