Um eignina
Eignin Kirkjuvegur 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4164, birt stærð 170.2 fm.
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6907282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.
Um er að ræða tveggja hæða eign í þríbýlishúsi með fimm svefnherbergjum og stórum garði. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, búri, stofu, borðstofu, fimm svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslulofti yfir allri eigninni. Neðri hæð samanstendur af rúmgóðri forstofu, geymslu og þvottahúsi. Efri hæð samanstendur af eldhúsi, búri, borðstofu, stofu, baðherbergi, fimm svefnherbergjum, útgang út á timbursvalirsem snúa í suður. Teppalagður stigi er á milli hæða. Búið er að fá samþykki íbúa að skipta um þak sem verður gert í sumar 2026. Skipt hefur verið um flest gler og lausafög í eigninni og einangra og klæða þrjár hliðar að utan.
Forstofa: er mjög rúmgóð með flísum á gólfi
Þvottahús: er rúmgott með steyptu máluðu gólfi og opnanlegu fagi.
Eldhús: er með hvítri innréttingu og kork á gólfi. Rúmgott búr er inn af eldhúsi með innréttingu og opnanlegu fagi.
Stofa og borðstofa liggja saman með góðu gluggaplássi og parket á gólfi.
Svefnherbergi: eru í heildina 5 misstór, öll með parket á gólfi.
Baðherbergi: er á efri hæð með flísum á gólfi og þiljum á veggjum. Baðkar er með sturtu blöndunartækjum og glervæng. Innrétting er hvít, vaskur og salerni.
Geymsla: er yfir allri eigninni með góðu aðgengi um hurð á efri hæð.
Garður: stór grasilagður garður er aftan við eignina afgritur með skjólveggjum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
1 þinglýstur kaupsamningurHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Kirkjuvegur 3
Staðsetning
Allar 17 myndir
Upp ↑















