Um eignina
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.
Um er að ræða neðri hæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, baðherbergi, tveimur svefnherbergjum, geymslu og sameiginlegu þvottahúsi með efri hæð. Búið er að skipta um glugga og hurðar í eigninni. Neysluvatnslagnir hafa verið endurnýjaðar. Hiti er í stétt framan við eignina.
Forstofa: er flísalögð með góðu fatahengi.
Eldhús: er með Ikea viðarinnréttingum og ljósri borðplötu. Plastparket er á gólfi.
Stofa: er með góðu gluggaplássi og parket á gólfi. Vængjahurð er inn í svefnherbergi.
Baðherbergi: er með flísum á gólfi og í sturtuklefa. Hvít innrétting, vaskur og gólftengt klósett.
Svefnherbergi: eru tvö með parket á gólfi og fataskápum.
Geymsla: er með góðu hilluplássi, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.
Þvottahús: er sameignilegt með efri hæð með sérinngangi út í garð. Mjög rúmgott með skápum og flísum á gólfi.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Vesturgata 10
Staðsetning
Allar 9 myndir
Upp ↑







