Um eignina
Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á einni hæð með stórum timburpalli. Íbúðin hefur verið mikið endurgerð eins og þak, vatnslagnir, raflagnir, gluggar, baðherbergi, eldhús og gólfefni. Einnig hefur verið sprautað þennslu efni í vegg að garði og komið í veg fyrir leka. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu. Í sameign með efri hæð telst stigagangur og hluti af geymslurými í kjallara. Stór garður fyrir aftan eignina er einnig í sameign.
Forstofa: er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús: er með hvítri rúmgóðri innréttingu og flísum á gólfi, Útgangur er út á stóran timburpall frá eldhúsi.
Stofa: er parketlögð með góðu gluggarými og útsýni.
Svefnherbergi: eru tvö mjög rúmgóð með parket á gólfi.
Baðherbergi: er með flísum í hólf og gólf, walk inn sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús: er í kjallara með góðri loftun og glugga.
Geymsla: er mjög rúmgóð einnig í kjallara með steyptu máluðu gólfi.
Kjallari: skiptist í sameignar- og séreignarsvæði.
Garður: er fyrir aftan eign og er í sameign.
Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Verðsaga
3 þinglýstir kaupsamningarHeimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Lækjargata 11
Staðsetning
Allar 16 myndir
Upp ↑














