fasteignasölur.is
Suðurgata 78
NýttOpið hús 29. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 30

Um eignina

Virkilega falleg og björt endaíbúð á 2. hæð ( efstu) við Suðurgötu 78 í Hafnarfirði.
Eignin er alls 94,5 fm og skiptist þannig að íbúðin sjálf er 87,1 fm og sér geymsla í kjallara 7,4 fm. 
Gott útsýni er út eigninni og gluggar til þriggja átta. 


Framkvæmdir seinustu ára innan íbúðar skv. seljanda:
2016 Sólbekkir endurnýjaðir
2017 Innihurðir endurnýjaðar
2017 Þvottahús stækkað, flísalagt, nýjar innréttingar frá Ikea
2021 Eldhús stækkað, tekinn veggur og opnað inn í stofu, nýjar innréttingar frá Ikea
2021 Rafmagnstafla og rafmagn endurnýjað að hluta
2021 Ný gólfefni frá Parka, olíuborið eikarparket á alla íbúð fyrir utan votrými
2024 Ofnar í stofu endurnýjaðir
2026 Ofn á baðherbergi endurnýjaður

Framkvæmdir seinustu ára á samegin skv. seljanda:
2017 Teppi á sameign 
2017Sameign máluð
2020 Hús málað að utan og smávægilegar múrviðgerðir
2020 Gluggi í sameign endurnýjaður
2025 Aðaltafla endurnýjuð

Nánari lýsing: 
Rúmgóð forstofa og hol með fataskáp.
Stofa, borðstofa og eldhús í björtu alrými með gott útsýni yfir höfnina.
Eldhús með hvítri innréttingu með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp.Stór gluggi í enda eldhúss sem veitir mikilli birtu inn.
Þvottahús er innaf eldhúsi sem er með afar rúmgott með stæði fyrir þvottavél og þurrkara með tauskúffum undir og geymslu fyrir ofan.
Gott skápapláss, vaskur, snúrur og opnanlegur gluggi. Flísar á gólfi og veggjum.
Hjónaherbergi með skápum og útgengt út á skjólgóðar svalir.
Barnaherbergi með parket á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, baðkar með sturtu yfir, flísar á gólfi og veggjum. Opnanlegur gluggi.
Sér geymsla í kjallara með hillum og opnalegum glugga og hefðbundin sameign m/hjóla- og vagnageymslu. 
Gólfefni íbúðar er parket fyrir utan baðherbergi og þvottahús en þar eru flísar.
Eignin er ekki í samræmi við upphaflegar teikningar þar sem búið að er að opna eldhús inn í stofu og stækka þvottahús.
Sameign öll hin snyrtilegasta.


Falleg og vel staðsett eign í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í þá þjónustu og afþreyingu sem miðbærinn býður uppá ss sund, verslun, veitingastaði og fleira.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Suðurgata 78

220 Hafnarfjörður
TegundFjölbýlishúsStærð94,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
67.900.000 kr.719 þ./m²
Byggingarár1972InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2079811Fasteignamat63.850.000 kr.Brunabótamat50.500.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 17, 220 HafnarfjörðurSími520-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑