Um eignina
Eyri er talin ca 1.581 hektarar að stærð og liggur upp í Skarðsheiði að norðanverðu, til suðurs afmarkast landið af Laxá í Leirársveit, Hlíðarfæti að vestan og Kambshóli að austan,
Bæjarstæðið er á sólríkri hæð á móti suðri með Skarðsheiðina á bak við bæinn og fallega skógrækt. Mjög víðsýnt er frá íbúðarhúsinu og sér yfir Svínadalinn og niður til Akrafjalls.
Ræktað land er talið vera um 40 hektarar skv HMS og gott land er til aukinnar ræktunar.
Skógræktarland með trjám sem komin eru í talsverða hæð, fallegt útivistarsvæði með miklu fuglalífi.
Húsakostur er um 1.242 m² og skiptist þannig:
Einbýlishús 280,4 .m² byggt 1977 Ágætt tveggja hæða hús sem er talsvert endurnýjað.
Vélageymsla 216 m² byggt 1987
Hlaða 376 m² byggt 1976
Fjárhús / Hesthús 370 m² byggt 1979 Helmingur innréttaður sem hesthús með vönduðum innréttingum.
Laxá í Leirársveit. Jörðin á land að ánni og veiðirétt. Um er að ræða góða laxveiðiá og var veiðin sumarið 2026 yfir 1000 laxar. Eyrarfoss er í landi Eyrar og er sérlega fallegur foss sem gerður var fiskgengur með laxastiga.
Eyri er gróin of vel staðsett jörð með góðar malbikaðar vegasamgöngur og um 45 mín akstur frá Reykjavík.
Einstök og falleg jörð sem býr yfir öllu því helsta sem góð jörð býr yfir.
Nánari upplýsingar veitir Sigþór Bragason, löggiltur fasteigna, fyrirtækja og skipasali, í síma 899 9787, eða sendu fyrirspurn með tölvupósti á sb@giml
Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.
Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni.
Gimli gerir betur...
Eyri Jörð
Staðsetning
Allar 39 myndir
Upp ↑





































