fasteignasölur.is
Dugguvogur 13
1 af 36

Um eignina

Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali og Lifum Heima fasteignasala kynna:

Glæsilega rúmgóða íbúð á jarðhæð ásamt aukaíbúð með sérinngangi og tveimur samliggjandi bílastæðum í bílakjallara.

Stærri íbúðin er með þremur svefnherbergjum og minni íbúðin er með einu svefnherbergi.

Báðar íbúðir eru með yfirbyggðar svalir, vel búnar vönduðum tækjum og innréttingum, byggðar 2023 af ÞG Verk.

Einnig fylgir eigninni stór 17,2 fm geymsla í kjallara ásamt aðgangi að hjóla- og vagnageymslum.

Birt stærð eignarhluta er í heild 171,4 fm með geymslunni og til viðbótar er óskráðir fermetrar svala um 12,2 fm, samtals því heildarstærð eignar u.þ.b. 183,6 fm.

Stóra íbúðin er u.þ.b. 101,5 fm
Litla íbúðin er u.þ.b. 64,9 fm
Geymsla kjallara er u.þ.b. 17,2 fm

** BÓKIÐ SKOÐUN **
Hrannar Jónsson, löggiltur fasteignasali / s. 899 0720 / hrannar@lifumheima.is

Frábær kostur fyrir stóra fjölskyldu eða fjárfesta til útleigu!

Lýsing eignarhluta:
Íbúð 104 er einstaklega vönduð og smekkleg í alla staði. Skiptist hún í stærri íbúð með þremur svefnherbergjum, baðherbergi með sturtu og þvottahúsi innaf, gott alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu, gengið út á 6,4 fm yfirbyggar svalir. Íbúðirnar deila sömu forstofu og svo er minni íbúðin með einu svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og alrými með eldhúsi/borðstofu/stofu, útgengt á 5,8 fm yfirbyggðar svalir. Minni íbúðin er með sérinngang og í þeirri forstofu er búið að koma fyrir tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Tvö samliggjandi bílastæði eru í bílageymslu og stór 17,2 fm geymsla fylgir íbúðinni ásamt aðgengi að hjóla- og vagnageymslu.

Um innréttingar og tæki:
  • Innréttingar: Í eldhúsum og baðherbergjum eru frá þýska framleiðandanum Nobilia og fataskápar frá GKS smíðaverkstæði. Eldhúsinnréttingar eru mismunandi útfærðar eftir íbúðum. Lýsing undir efri skápum í eldhúsum. Speglaskápar eru á aðalbaðherbergjum. 
  • Eldhústæki: Íbúðunum fylgja vönduð eldhústæki af gerðinni AEG. Íbúðum er skilað með span helluborði, innbyggðum kæliskáp, innbyggðri uppþvottavél, blástursofni og viftu eða lofthengdum eyjuháfi þar sem það á við.
  • Hreinlætistæki: Salernisskál er vegghengd með innbyggðum vatnskassa. Sturtur eru með flísalögðum botni og hertu sturtugleri. Hreinlætistæki eru frá Grohe, hitastýrð eða einnar handar. Þvottahús eru ýmist innan baðherbergja eða í sér rými.

Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.

Vogabyggð er skjólsæl svæði í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.

Nánari upplýsingar veita:
Hrannar Jónsson löggiltur fasteignasali / s.899-0720 / hrannar@lifumheima.is
Lifum heima fasteignasala / s.463 3333 / lifumheima@lifumheima.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignalausnir ehf
145.900.000 kr.795 þ./m²
+21,7% á 2 árum
4. apríl 2024Fyrsta sala
119.900.000 kr.700 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dugguvogur 13

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð183,6 m²Herbergi5Svefnherb.4Baðherb.2
145.900.000 kr.795 þ./m²
Byggingarár2023InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2516562Fasteignamat122.200.000 kr.Brunabótamat123.190.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHamravík 36, 112 ReykjavíkSími899-0720

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑