fasteignasölur.is
Engjasel 84
Opið hús 28. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 34

Um eignina

Nýtt á skrá! Engjasel 84 Reykjavík - Afar falleg 3ja herb. íbúð á fjórðu hæð (efstu) með glæsilegu útsýni og sérstæði í bílakjallara.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallega 96,8 fermetra 3ja herbergja íbúð á fjórðu hæð (efstu) með sérstæði í lokuðum bílakjallara í fallegu fjölbýli við Engjasel 84 í Reykjavík. Eignin er afar sjarmerandi með fallegu útsýni úr stofum og svölum. Skráð heildarstærð er 96,8 fermetrar og þar af eru 13,0 fermetrar stæði í bílakjallara. Geymsla er staðsett á jarðhæð hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu. Möguleiki er að nýta mikið loftrými sem er yfir íbúðinni, m.a. með því að gera stiga upp frá stofu (þinglýst leyfi frá íbúum).


Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Klæðning (slétta klæðningin) og allir gluggar voru endurnýjaðir árið 2020. Þak og þakgluggar var endurnýjað árið 2018. Auk þess er búið að endurnýja rafmagn, lýsingu, loftræstingu, inngangshurðar og innkeyrsluhurð í bílakjallara.

Íbúðin er staðsett í grónu fjölskylduhverfi með góðum leiksvæðum í næsta nágrenni. Í hverfinu eru 5 leikskólar og tveir grunnskólar (Seljaskóli og Ölduselsskóli). Stutt er í íþróttasvæði ÍR sem er neðst í Seljahverfi og skíðasvæði með skíðalyftu við Krónuna. Fjölbrautarskólinn í Breiðholti og Breiðholtslaug í næsta nágrenni. 


Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stórir gluggar til suðurs með fallegu útsýni. Útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs með fallegu útsýni.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri hvítri eldhúsinnréttingu. Stál bakaraofn, helluborð og frístandandi eldhúseyja. 
Þvottarými: Er staðsett inn af eldhúsi. Flísar á gólfi og tenglar fyrir þvottavél/þurrkara. 
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum og glerþili. Falleg innrétting við vask og salerni.
Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi og skápum á heilan vegg. Gluggi til suðurs og útgengi á svalir til suðurs.
Barnaherbergi: Með glugga.

Bílastæði: Er sérmerkt í lokuðum bílakjallara. Þvottastæði er í bílakjallara.
Geymsla: Er staðsett á jarðhæð. Málað gólf og um 5,6 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Seljahverfi þar sem stutt er í leikskóla, grunnskóla , íþróttasvæði, verslun/þjónustu og sundlaug. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672

Engjasel 84

109 Reykjavík · Bakkar/Seljahverfi
TegundFjölbýlishúsStærð96,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
64.900.000 kr.670 þ./m²
Byggingarár1977InngangurSameiginlegurBílskúrJáFasteignanúmerF2055541Fasteignamat59.350.000 kr.Brunabótamat48.000.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑