fasteignasölur.is
Baugakór 18
Opið hús 28. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 30

Um eignina

Heimili fasteignasala og Brynjólfur Snorrason, lgfs., kynna bjarta og glæsilega þriggja herbergja íbúð á fjórðu (efstu) hæð ásamt stæði í lokuðum bílakjallara (B-01) í snyrtilegu lyftuhúsi, byggðu af Gunnari og Gylfa, við Baugakór 18 í Kópavogi.  Eignin er skráð 95,5 m2 að stærð, þar af íbúðarrými 88,4 m2 og geymsla 7,1 m2, og samanstendur af anddyri, holi/skála, tveimur svefnherbergjum, fallegu eldhúsi, þvottahúsi, baðherbergi og rúmgóðri stofu með útgengi á 9,4 m2 suðursvalir. Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í matvöruverslanun, leik- og grunnskóla, Kórinn íþróttamiðstöð og fallega náttúru. 

Nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is.

Nánari lýsing.
Forstofa: Sérinngangur frá svalagangi, tvöfaldur fataskápur. Flísar á gólf.
Hol/skáli: Tengir saman aðrar vistarverur íbúðar. Parket á gólfi. 
Eldhús: Parket á gólfi, lökkuð innrétting (GKS), mikið skápapláss, góð vinnuaðstaða, ofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Á gólfi eru flísar og í eldhúsi er gluggi til norðurs. 
Stofa og borðstofa: Parket á gólfi. Stórir gluggar til suðurs og útgengi úr stofu á 9,4 fm suðursvalir. 
Hjónaherbergi: Rúmgott. Parket á gólfi, fataskápur. 
Barnaherbergi: Parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Lökkuð eikarinnrétting með góðu skápaplássi. Flísar á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuaðstöðu og sturtugleri, upphengt salerni, handklæðaofn.
Þvottahús/búr: Í sér rými inn af eldhúsi. Léttar hillur og hvít innrétting með góðu skápaplássi og þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Á gólfi eru flísar. 

Íbúð tilheyrir sér stæði í lokaðri bílageymslu (B-01) þar sem er tengi fyrir bílhleðslustöð auk þvottaaðstöðu, sérgeymsla (0108) og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Falleg eign í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í matvöruverslanun, leik- og grunnskóla, Kórinn íþróttamiðstöð og fallega náttúru. 

Allar nánari upplýsingar veitir Brynjólfur Snorrason, lgfs., brynjolfur@heimili.is.


Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.  

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.

Baugakór 18

203 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð95,5 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
77.900.000 kr.816 þ./m²
Byggingarár2006InngangurSérinngangurBílskúrJáLyftaJáFasteignanúmerF2282047Fasteignamat74.450.000 kr.Brunabótamat62.290.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangGrensásvegur 3, 2. hæð., 108 ReykjavíkSími530-6500

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑