Um eignina
Eggert löggiltur fasteignasali verður á staðnum.
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða vel skipulagða 135,2 fm 4ra til 5 herbergja endaíbúð á annarri hæð með glugga í þrjár áttir í snyrtilegri sameign ásamt bílskúr í bílskúrslengju rétt við húsið. Forstofa íbúðar var flísalögð og nýr skápur settur upp 2026, búið að skipta um dósir og tengla. Járn og pappi ásamt þakgluggum var endurnýjað um 2020 og þá var húsið líka múrviðgert og málað ásamt því að hurðir fyrir ruslageymslu og hjólageymslu voru endurnýjaðar. Aðalhurð inn í sameign var svo endurnýjuð 2025. Skipt var um gler og glugga íbúðar 2025. Stutt er í Selásskóla, Árbæjarlaug og Elliðarárdalinn ásamt annarri almennri þjónustu.
Íbúðin er 110,5 fm (merkt 01-0201) og bílskúrinn er 24,7 fm (merkt 04-0109) samtals er eignin 135,2 fm skv skráningu Þjóðskrá Íslands.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og rúmgóðum skápum.
Hol er með parket á gólfi, holið var áður herbergi og væri því lítið mál að breyta því aftur tilbaka. Nú er það nýtt sem sjónvarpshol.
Stofa er með parket á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir.
Eldhús er með flísar á gólfi, viðarinnréttingu og flísar á milli efri og neðri skápa.
Svefnherbergin eru þrjú og er parket á tveimur herbergjum og teppi á einu, skápar í öllum herbergjum.
Baðherbergið er með flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, upphengt wc, baðkar, gluggi með opnanlegt fag og innrétting í kringum vask.
Þvottahús er inn af eldhúsi og er með flísum á gólfi, hillum og upphengi.
Geymsla er í bílskúr.
Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Bílskúr er með stein á gólfi, geymsluloft, heitt og kalt vatn og rafmagn á sérmæli.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Skógarás 1
Staðsetning
Allar 36 myndir
Upp ↑


































