fasteignasölur.is
Álftamýri 16
Opið hús 28. sept. kl. 17:00–17:30
1 af 33

Um eignina

**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **

RE/MAX ásamt Þórdísi Björk og Salvöru Þóru Davíðsdætrum löggiltum fasteignasölum kynna:
Bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýlishúsi við Álftamýri 16, 108 Reykjavík. Eignin er með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðri og bjartri stofu og suðursvölum með góðu útsýni. Íbúðin var máluð og yfirfarin í ágúst 2026, parket slípað og ýmsar endurbætur gerðar. Verið er að klára múrviðgerðir og málun á eigninni að utan og greitt af seljanda.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 74,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 67,8 fm og geymslu 6,2 fm.

- Frábær fyrstu kaup
- Suður svalir - Útsýni
- Húsið hefur fengið gott viðhald og var málað að utan árið 2026.


*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**  HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, -  KÍKTU Í HEIMSÓKN!

Innan íbúðar eru tvö svefnherbergi, rúmgóð stofa, eldhús, baðherbergi, miðrými og forstofa.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa og miðrými: Parket á gólfi sem var slípað í ágúst 2026. Fataskápar eru við inngang í íbúðina.
Eldhús: Hvít eldhúsinnrétting með flísum á milli skápa. Í ágúst 2026 var nýtt gólfefni lagt í eldhús, skipt um höldur á innréttingu og blöndunartæki endurnýjað. Ný eldavél var keypt í ágúst/september 2026.
Stofa: Björt og rúmgóð með stórum gluggum til suðurs. Parket á gólfi sem var slípað í ágúst 2026. Útgengt er úr stofunni á suðursvalir og þaðan er gott útsýni.
Baðherbergi: Með baðkari og glugga með opnanlegu fagi til loftunar. Salernisskál var endurnýjuð í ágúst 2026.
Svefnherbergin eru tvö.
Herbergi I: Hjónaherbergi með góðum fataskáp frá IKEA.
Herbergi II: Barnaherbergi eða skrifstofa með parketi á gólfi sem var slípað í ágúst 2026.
Sérgeymsla: Sérgeymsla eignarinnar er 6,2 fm.
-------
Endurbætur á íbúð:

Í ágúst 2026:
  • Íbúðin öll máluð og yfirfarin utan flísa á baði og í eldhúsi
  • Parket slípað 
  • Nýtt gólfefni lagt í eldhús og skipt um höldur á eldhúsinnréttingu 
  • Blöndunartæki í eldhúsi endurnýjað ásamt því að ný eldavél var keypt í ágúst/septembe
  • Salernisskál á baðherbergi endurnýjuð 
-------
Framkvæmdir og viðhald á sameign utanhúss Á16-22:
  • 2026 - Steypuskemmdir hafa verið lagfærðar og húsið múrað og málað. Verk er að klárast og greitt af seljanda
  • 2018 - Þakjárn og þakpappi voru endurnýjuð 
  • 2017 - Ný hellulögn með snjóbræðslu var lögð
  • 2013 - Skólplagnir voru fóðraðar 
  • 2013 - Skipt var um gler norðan megin 
  • 2007 - Skipt var um gler sunnan megin 
  • 2007 - Raflagnir voru endurnýjaðar
-------
Framkvæmdir og viðhald á sameign innanhúss Á16:
  • Stigagangur málaður og teppalagður fyrir ca 5 árum.
  • Fyrirhugað er að endurnýja rafmagnstöflu í sameign árið 2026-27 (sjá yfirlýsingu húsfélags dags.25.09.2026)
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efstu hæð á góðum stað í Reykjavík. Stórir gluggar til suðurs veita góða birtu inn í stofu og þaðan er útgengt á suðursvalir með góðu útsýni. Eignin hentar vel fyrir einstaklinga, pör eða minni fjölskyldur og er staðsetningin góð þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir, íþróttir, útivist og helstu stofnbrautir borgarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
  - Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
  - Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is

---------------------------------------------------------------
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - sjá nánari upplýsingar um gjaldskrá á heimasíðu lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

ERT ÞÚ Í FASTEIGNAHUGLEIÐINGUM?
Veistu ekki hvort þú eigir að fara af stað með þína eign og þú ekki búin/n að finna aðra?
Við kíkjum til þín í spjall og förum yfir málin saman! Við höfum starfað við fasteignasölu í yfir áratug og leggjum okkur fram um að veita persónulega og góða þjónustu, viðhalda góðu upplýsingaflæði og vanda vinnubrögð fyrir bæði seljendur og kaupendur.

Hafðu samband í dag! - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Þórdís Björk Davíðsdóttir, lgf í síma 862-1914 eða thordis@remax.is
- Salvör Þóra Davíðsdóttir, lgf í síma 844-1421 eða salvor@remax.is

Álftamýri 16

108 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð74 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
63.900.000 kr.864 þ./m²
Byggingarár1961InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2013905Fasteignamat58.950.000 kr.Brunabótamat38.600.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑