fasteignasölur.is
Hamrahlíð og Hamar
1 af 34

Um eignina

Fasteignamiðstöðin Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi sími: 550 3000 er með til sölu í Skagafirði jörðina Hamrahlíð fasteignanúmer F2141057,  landeignanúmer L146170 og eyðijörðina Hamrar,  landeiganúmer L146171 ásamt sameignarréttindum póstnúmer 561 Varmahlíð.
Hamrahllíð er nýbýli, upphaflega stofnað árið 1957 á ytri helmingi af landi jarðarinnar Hamrar. Hamrahlíð átti upphaflega land að Hömrum að sunnan, en nú að Sölvanesi, Mælifelli að vestan, Starrastöðum að norðan, Svartá að austan, upphaflega móts við Brúnastaði og Stórhól en nú einnig Þorsteinsstaðir og Árnes. Íbúðarhúsið var reist 1957, tvær hæðir steinsteyptar en útveggir á efri hæð hlaðnir úr holsteini, samtals 143,6 m2. Spölkorn vestur af því eru fjárhús, steypt 1959 fyrir um 280 fjár, og önnur norðan undir hlöðunni, steypt 1973 fyrir um 80 fjár. Við fjárhúsin er þurrheyshlaða, steypt 1960, 708m3. Vélageymsla var byggð skammt sunnan fjárhúsanna 1975, steypt, 106 m2. Allur húsakostur þarfnast viðhalds. Sauðfé hefur verið aðalbústofninn auk nokkurra hrossa. Nú um 400 kindur. Hamrahlíð er í Mælifellssókn og á upprekstur á Eyvindastaðaheiði. Rafmagn frá samveitu en það kom í maí 1963 og er nú komin þriggja fasa lögn. Ljósleiðari. Hitaveita komin inn fyrir vegg. Hinn helming jarðarinnar keyptu eldri ábúendur haustið 1972 og hafa Hamrar því í raun gengið að fullu inn í nýbýlið Hamrahlíð en teljast enn þrátt fyrir það sérstakt lögbýli. Jarðirnar með bústofni véla og án framleiðsluréttar.
Staðsettning á korti https://landeignaskra.hms.is/?v_mode=landeign&v_land=146170&v_lsk=0-0&v_sf=10050728

Tilvísunarnúmer: 10-2843

Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang:  fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is  / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is            
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hamrahlíð og Hamar

561 Varmahlíð
TegundJörð/LóðStærð413747,7 m²
120.000.000 kr.0
FasteignanúmerF2141057Fasteignamat40.803.000 kr.Brunabótamat98.090.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmára 17, 201 KópavogurSími550-3000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑