Um eignina
Fallega og sjarmerandi 85,8m². 3ja herbergja íbúð við Vesturgötuna. Íbúðin er á þriðju hæð í fimm hæða lyftuhúsi, suðursvalir. Fallegt útsýni til norðurs frá eldhúsi og svefnherbergi yfir Akrafjall, Esjuna og gömlu höfnina í Reykjavík. Íbúðin var öll smekklega endurnýjuð árið 2005. Fallegt eikarparket er á íbúðinni ásamt fallegum loftlistum sem ramma inn umgjörð íbúðarinnar. Eign með skemmtilegan karakter, rúmgóð og björt rými, suðursvalir og fallegt útsýni á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Nánari upplýsingar veita:
Þórarinn Thorarensen sölustjóri s. 770 0309 / th@landmark.is
Sveinn Eyland lögg. fast. s. 6 900 820 / sveinn@landmark.is
Forstofa: Komið er inn í forstofu með speglaskáp og rustic eikarparketi á gólfi. Frá forstofu er gengið inn í aðrar vistarverur íbúðarinnar.
Eldhús / borðstofa: Afar sjarmerandi og rúmgott. Tveir gluggar í norður og stórkostlegt útsýni. Neðri skápar eru undir gluggum ásamt gaseldavél, uppþvottavél og þvottavél sem fylgja íbúðinni. Einnig fylgja með frístandandi eyja og eikarskápur. Gólfflísar eru fyrir framan eldhúsinnréttingu.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með stórum glugga í norður og gott útsýni. Rúmgóður skápur og eikarparket á gólfi.
Herbergi: Er inn af forstofu til hægri með franskri gluggahurð og suðurglugga, eikarparket á gólfi.
Baðherbergi: Er mjög smekklegt. Flísalagt með hita í gólfi, baðkar með sturtuaðstöðu og handklæðaofn. Innbyggð blöndunartæki.
Stofa: Rúmgóð og björt með eikarparket á gólfi, útgengt á góðar suðursvalir.
Sérgeymsla: Með íbúðinni fylgir geymsla í kjallara sem er skráð 2,9m².
Sameignlegt mjög gott þvottahús, hjólageymsla og þurrkherbergi í kjallara hússins.
Viðhaldssaga hússins :
2026 Flestir gluggar og gler endurnýjað í íbúðum.
2020 Endurnýjun á stýrikerfi og búnaði lyftu
2019 Ný rafmagnstafla fyrir húsið
2018 Nýir gluggar í stigagangi
2017 Viðgert þak, þ.e. nýr pappi, túður og þakstál
2015 Múrviðgerðir og ný steining á húsi.
Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat
Vesturgata 50A
Staðsetning
Allar 30 myndir
Upp ↑




























