Um eignina
Framan við húsið eru sameiginleg bílstæði, sérstæði er framan bílskúrs. Sameiginleg gróin lóð er með hellulögðum göngustíg. Öll þjónusta og verslanir eru í göngufæri
Nánari lýsing:
Anddyri: Rúmgott og tengir saman flest rými íbúðarinnar.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum. Gengið er þar út á langar og rúmgóðar svalir sem liggja meðfram allri íbúðinni. Stálhandrið á svölum og viðarplattar á svalagólfi.
Eldhús: Falleg og nýleg innrétting sem liggur í L eftir tveimur veggjum. Virkilega stórt og gott eldhús sem er opið að hluta inn að stofu sem myndar skemmtilegt og rúmgott rými.
Baðherbergi: Fallegt baðherbergi sem flísalagt að hluta. Sturtuklefi og hvít innrétting með handlaug.
Herbergi: Rúmgott herbergi, hol er fyrir framan herbergi þar sem möguleiki er að gera vinnuaðstöðu eða setja góða fataskápa.
Sérgeymsla: Er á jarðhæð á geymslugangi. Geymslan er stór og rúmgóð.
Bílskúr: Er í frístandandi bílskúrsbyggingu. Hitaveita, rafmagn, kalt og heitt vatn. Um er að ræða endaskúr sem er næst inngangi.
Sameign:
Þvottaherbergi: Rúmgott, staðsett á hæð íbúðar. Er sameign íbúða á hæðinni sem eru fimm. Hver íbúð er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi og mjög snyrtilegt.
Hjóla og vagnageymsla: Er á jarðhæð. Sérútidyrahurð.
Önnur sameignarrými; Geymsla húsfélags (16,5 fm) , hitaherbergi (17,8 fm), stigahús, gangar og þakrými (sjá nánar eignaskiptayfirlýsingu).
Framkvæmdir samkvæmt eiganda:
2016 - Þak yfirfarið og skipt um þakpappa (ca. 2016)
2019 - Neysluvatnslagnir endurnýjaðar
2020 - Nýr Varmaskiptir/Forhitari
2021-2022 - Sprunguviðgerðir og framkvæmdir vegna leka
2021-2024 - Gluggar endurnýjaðir á Austur, Norður og Vestur hlið. Búið að endurnýja 2-3 glugga Suður hlið.
2025 - Nýr Varmaskiptir/Forhitari
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður
Tjarnarból 14
Staðsetning
Allar 22 myndir
Upp ↑




















