fasteignasölur.is
Sólheimar 25
Opið hús 1. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 37

Um eignina

Nýtt á skrá! Sólheimar 25 - Glæsileg útsýnisíbúð með rúmgóðum svölum með svalalokun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 87,8 fermetra 3ja herbergja útsýnisíbúð á 6. hæð í lyftuhúsi með rúmgóðum svölum til suðurs með svalalokun og tveimur geymslum (2,7fm og 2,5fm) við Sólheima 25 í Reykjavík. Íbúðin er björt með nýlegu eldhúsi með afar vönduðum eldhústækjum sem er búið að opna inn í alrými íbúðar og með nýlegu parketi á gólfum. Baðherbergi hefur sömuleiðis verið endurnýjað á smekklegan máta. Gólfsíðir gluggar í stofu með glæsilegu útsýni yfir hluta höfuðborgarsvæðisins og til fjalla.

Um er að ræða virkilega sjarmerandi fjölbýli, byggt árið 1962, sem hefur fengið lof fyrir fallega hönnun. Arkitekt hússins er Guðmundur Kr. Guðmundsson. Öll sameign hússins er til mikilliar fyrirmyndar og viðhald á húsinu gott. Drenlagnir voru endurnýjaðar 2018, skólplagnir voru fóðraðar 2017 og múrviðgerðir og málun hefur verið sinnt í gegnum árin. Húsvörður er í húsinu sem býr í húsvarðaríbúð í eigu húsfélagsins. Tvær lyftur eru í húsinu. Stórt sameiginlegt þvottaherbergi er á 12. hæð (efstu) með glæsilegu útsýni í 360 gráður yfir allt höfuðborgarsvæðið, til fjalla og út á sundin. Stórar sameiginlegar svalir eru á þakhæð hússins með glæsilegu útsýni. Nýlegur myndavéladyrasími er í húsinu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er staðsett í kjallara. Myndavélaeftirlitskerfi er í sameign hússins.

Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Sólheima í Reykjavík. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug, heilsurækt, heilsugæslu og bókasafn. Laugardalurinn í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem hann hefur upp á að bjóða.

Nánari lýsing:

Forstofa/gangur: Með parketi á gólfi og innbyggðum skápum. 
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Hol: Með parketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er rúmgóð og björt með parket á gólfi. Gólfsíðir gluggar til suðurs með glæsilegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið til suðurs og til fjalla. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.
Svalir I: Eru stórar og með svalalokun. Glæsilegt útsýni yfir höfuðborgarsvæðið til suðurs og vesturs.
Eldhús: Er afar fallegt, endurnýjað og með parketi á gólfi. Falleg eikar eldhúsinnrétting með graníti á borðum og afar vönduðum eldhústæki m.a. De Dietrich bakaraofn, gufuofn, örbylgjuofn og innbyggð kaffivél. Liebherr innbyggður frystiskápur og stæði fyrir kæliskáp. Tengi fyrir uppþvottavél og stóru De Dietrich spansuðu helluborði. 
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum. Falleg innrétting við vask, upphengt salerni og gluggi til vesturs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, góðum skápum, glugga til vesturs og útgengi á svalir II.
Svalir II: Snúa til vesturs með glæsilegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið.

Geymsla I: Er staðsett á hæðinni og er 2,5 fermetrar að stærð.
Geymsla II: Er staðsett á geymslugangi í kjallara og er 2,7 fermetrar að stærð.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í kjallara. Snyrtileg með epoxy gólfi og gluggum til suðurs og austurs. Útgengi á lóð.
Þvottaherbergi og þurrkherbergi: Er rúmgott og sameiginlegt á 12. hæð hússins (efstu) með epoxy á gólfi. Þrjár þvottavélar, þurrkari, strauvél og vinnuborð. Bjart rými með glæsilegu útsýni.
Sameiginlegar svalir: Eru staðsettar á þaki hússins. Glæsilegt 360 gráðu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið, út á sundin og til fjalla.
Húsvarðaríbúð: Er staðsett í húsinu sem er í eigu húsfélagsins.
Húsvarðarrými: Er staðsett í kjallara sem er notað sem fundarherbergi eða vinnusvæði fyrir húsvörð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Sólheimar 25

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð87,8 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
70.900.000 kr.808 þ./m²
Byggingarár1962InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2021620Fasteignamat68.500.000 kr.Brunabótamat51.200.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 37 myndir

Upp ↑