fasteignasölur.is
Álfhólsvegur 15
Opið hús 30. sept. kl. 16:30–17:00
1 af 34

Um eignina

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@landmark.is kynna:

Bjarta og fallega þriggja herbergja 86,6 fm íbúð á 1. hæð við Álfhólsveg 15 í Kópavogi. Sér inngangur er í íbúðina og sér afnotareitur sem snýr í suður en garðurinn er afar skjólsæll og fallega gróin. Íbúðin er afar snyrtileg með tveimur svefnherbergjum, rúmgóðu baðherbergi og björtu alrými þaðan sem útsýni er í norður. Íbúðin er ný máluð og með vönduðum upprunalegum innréttingum, fataskápum og hurðum úr kirsuberjavið. Íbúðin er fæst afhent við kaupsamning. 

Birt stærð íbúðar er 79,3 fm og geymslu er 7,3 fm samtals, 86,6 fm.  
Eignin skiptist í forstofu, hol, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu og sér geymslu, staðsetta á jarðhæð. 

✅ Björt og rúmgóð þriggja herbergja íbúð
✅ Sér inngangur og sér afnotareitur í suðurátt
✅ Eign í góðu fjögurra íbúða fjölbýli byggt árið 2000
✅ Fjögur bílastæði á lóð að ofanverðu sem tvær íbúðir eru að nota
✅ Örstutt göngufæri við alla helstu verslun og þjónustu


Nánari lýsing
Forstofa: Flísar á gólfi og stór fataskápur.
Hol og alrými: Með eldhúsi, stofu og borðstofu, parket á gólfi
Eldhús: Kirsuberjainnrétting, nýlegur ofn og helluborð, flísar á milli skápa og eyja með skúffum.
Svefnherbergi er tvö: Rúmgóð með fataskápum, parket á gólfum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðinnréttingu og baðkari með sturtu yfir. 
Geymsla: Staðsett á jarðhæð. 

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@landmark.is

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Álfhólsvegur 15

200 Kópavogur
TegundFjölbýlishúsStærð86,6 m²Herbergi3Svefnherb.2Baðherb.1
73.900.000 kr.853 þ./m²
Byggingarár2000InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF2236503Fasteignamat66.750.000 kr.Brunabótamat48.900.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑