fasteignasölur.is
Kleppsvegur 38
Opið hús 1. okt. kl. 17:00–17:30
1 af 32

Um eignina

Eignaland kynnir fallega og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð að Kleppsvegi 38 í Reykjavík. Eignin er skráð 103,9 fm og samanstendur af þremur rúmgóðum svefnherbergjum, stofu og borðstofu, eldhúsi með góðri borðaðstöðu, baðherbergi ásamt tveimur sérgeymslum í kjallara. Suðursvalir eru við íbúðina. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð á undanförnum árum og er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða fjölskyldueign á góðum stað í Laugardalnum.

Nánari upplýsingar hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is

Nánari lýsing:

Stofa og borðstofa:
Stofan er rúmgóð og björt og er góð borðstofuaðstaða við stofuna. Rýmið er rúmgott og býður upp á góða nýtingarmöguleika fyrir bæði setustofu og borðstofu. Útgengt er á suðursvalir frá íbúðinni.
Eldhús:
Eldhúsið er rúmgott með góðri borðaðstöðu. Falleg endurnýjuð innrétting.
Svefnherbergi:
Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru þau öll rúmgóð með skápum
Baðherbergi:
Baðherbergi er flísalagt með innréttingu, salerni og baðkari
Geymslur:
Í kjallara fylgja eigninni tvær sérgeymslur sem gefa gott aukið geymslupláss. Eigninni fylgir einnig sérhólf í frystiklefa í kjallara hússins.

Endurbætur á íbúð undanfarin ár:
 - Eldhúsið var endurnýjað 2021
 - Allar neysluvatnslagnir lagðar nýjar í eldhús 2021
 - Rafmagn og rafmangstafla var allt yfirfarið og dregið nýtt að hluta t.d. í eldhús 2021
Endurbætur á húsin undanfarin ár:
 - Frárennsli/skólp endurnýjað árið 2020, settur nýr brunnur og drenað í kringum vesturgaflinn
 - Vatnslagnir í sameign í kjallara endurnýjaðar 2020
 - Stigagangur teppalagður og málaður 2019
 - Eldvarnarhurðir settar 2019
 - Múrviðgerðir á suðurhlið 2018
 - Nýir gluggar í eldhúsi, stofu og hjónaherbergi 2018
 - Þakjarn og rennur á húsinu endurnýjað 2008
 - Vesturgafl klæddur 2024
 - Austurgafl klæddur 2006
 - Gluggar og húsið yfirfarið 2025
 - Gluggar á Suðurhlið málaðir 2026
 - Yfirstandandi framkvæmdir vegna gluggaskipta í báðum barnaherbergjum. Verið að setja nýjar úti- og millihurðir. Seljandinn greiðir þær framkvæmdir. 

Staðsetning:
Kleppsvegur 38 er vel staðsettur í grónu og rótgrónu hverfi í Laugardalnum. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra helstu þjónustu ásamt fjölbreyttri íþrótta- og útivistaraðstöðu Laugardalsins. Staðsetningin er jafnframt góð með tilliti til samgangna og stutt er í miðborg Reykjavíkur.

Hér er um að ræða fallega, rúmgóða og mikið endurnýjaða fjögurra herbergja fjölskyldueign með þremur góðum svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og borðstofu, góðu eldhúsi, suðursvölum og miklu geymsluplássi.
Tvær rúmgóðar geymslur í kjallara ásamt inngengnum frystiklefa þar sem allir íbúar eru með sér skáp. Sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagngeymsla í kjallara ásamt vinnuaðstöðu. matjurtabeð í garði. Leikvöllur með leiktækjum við enda garðsins. 

Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, s:893-1984 eða magnus@eignaland.is

 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.

Kleppsvegur 38

105 Reykjavík · Austurbær
TegundFjölbýlishúsStærð103,9 m²Herbergi4Svefnherb.3Baðherb.1
84.900.000 kr.817 þ./m²
Byggingarár1956FasteignanúmerF2016278Fasteignamat71.150.000 kr.Brunabótamat50.300.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangHlíðarsmára 5, 2. hæð, 200 KópavogurSími547-3900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑