fasteignasölur.is
Hafnartorg
1 af 3

Um eignina

Atvinnueign kynnir til leigu: 192 fm  verslunar- og þjónusturými á frábærum stað við Geirsgötu 17 á Hafnartorgi.

Um er að ræða glæsilegt nútíma verslunar- og þjónusturými staðsett á kjarnasvæði í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið Hafnartorgi Gallery. Rýmið býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika og hentar sérstaklega vel fyrir þjónustu, verslun, afþreyingu eða aðra upplifunarstarfsemi sem vill njóta sýnileika og sterkrar staðsetningar í hjarta borgarinnar. Laust eftir samkomulagi. VSK bætist við leiguverð. 

Skipulag: Frábært aðgengi og mikill sýnileiki frá Geirsgötu í einu vandaðasta húsi miðbæjarins.

Aðgengi: Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgum stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.

Umhverfi: Byggingin er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfsemi. 

Allar nánari upplýsingar veitir: 
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari, í síma 847-7700 eða olafur@atvinnueign.is

Á vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf, www.atvinnueign.is

                   - Atvinnueignir eru okkar fag -  

Hafnartorg

101 Reykjavík · Miðbær/Vesturbær
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð192 m²
Tilboð
FasteignanúmerF2002584
Skráð hjá
HeimilisfangSíðumúli 13, 108 ReykjavíkSími577-5500

Allar 3 myndir

Upp ↑