Um eignina
Nánari uppllýsingar eru hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða magnus@eignaland.is
Nánari lýsing:
Eignin er skráð samkvæmt HMS 188,4 fm og er byggð árið 1987. Húsið er allt á einni hæð. Núverandi eigendur byggðu húsið og hafa búið þar frá upphafi.
Húsið skiptist í eldhús og borðstofu, stofu, sjónvarpsherbergi, fimm svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, geymslu og geymsluloft.
Svefnherbergin eru fimm talsins og eru fjögur staðsett á sér svefnherbergisgangi ásamt baðherbergi og eitt forstofu herbergi.
Stofan er rúmgóð og auk hennar er sérstakt sjónvarpsherbergi.
Virkilega skemmtileg hönnun á húsinu. Arkitekt hússins var Egill Guðmundsson
Lóðin:
Eitt af því sem gerir eignina sérstaklega áhugaverða er hin stóra og fallega eignarlóð sem er um 5.005 fm. Mikill og gróskumikill trjágróður er á lóðinni og er hún að stórum hluta skógivaxin, sem skapar mikið skjól og einstakt næði.
Skjólgóður og sólríkur pallur liggur umhverfis húsið og gefur góða möguleika á að njóta útiveru og umhverfisins.
Fjögur gróðurhús eru á lóðinni.
Staðsetning:
Laugaból 2 stendur við Reykjahlíðarafleggjara í Mosfellsdal. Mosfellsdalurinn er einstaklega fallegt og gróið svæði þar sem náttúran er allt um kring. Svæðið einkennist af fallegu landslagi, miklum útivistarmöguleikum og rólegu umhverfi en jafnframt er stutt í byggð og þjónustu í Mosfellsbæ.
Mosfellsdalur er þekktur fyrir fjölbreytta útivist, göngu- og reiðleiðir og fallega náttúru. Í dalnum og nágrenni hans eru meðal annars Gljúfrasteinn og Helgufoss og svæðið býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir þá sem vilja njóta náttúrunnar.
Hér er um að ræða einstaklega skemmtilega eign fyrir þá sem vilja rúmgott einbýlishús á stórri og fallegri eignarlóð í Mosfellsdal. Mikill trjágróður, fjögur gróðurhús og góð útiaðstaða gera eignina að áhugaverðum kosti á einstökum stað.
Eign sem vert er að skoða.
Allar nánari upplýisngar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson lgf. s:893-1984 eða magnus@eignaland.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Eignaland fasteignasla bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda samkvæmt gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.
Laugaból 2
Staðsetning
Allar 38 myndir
Upp ↑




































